Vissir þú að...

á 45 sekúndna fresti deyr barn af völdum malaríu. Flugnanet til að koma í veg fyrir malaríu kostar aðeins 776 krónur.

Þú ert hér:  

Allt að 100 þúsund manns flúðu heimili sín í Austur-Kongó í síðustu viku

©UNICEF/KavanaghAllt að 100 þúsund manns, þar af 60 þúsund börn, flúðu heimili sín vegna harðra átaka milli vopnaðra hópa í norðurhluta Kivu í síðustu viku. Talið er að 250 þúsund manns hafi flúið heimili sín í síðastliðnum mánuði og þar með er hátt í ein milljón manna á vergangi í norðurhluta Kivu.

Aðstæður barna og kvenna, sem nýlega hafa lagt á flótta, eru mjög bágbornar. Þúsundir hafa hvorki fengið vott né þurrt séðan þau lögðust á flótta. Aðgangur að hreinu vatni og heilsugæslu er mjög lítill. Talið er að hundruðir barna hafi orðið viðskila við fjölskyldur sínar og verða að komast af ein á báti. Mikil truflun hefur orðið á skólagöngu tugþúsunda barna annað árið í röð.

Afleiðingar átakanna eru skelfilegar fyrir börn, bæði þau sem eru nú á vergangi og fyrir þau sem hafa skotið skjólshúsi yfir heimilislausa. Mikil hætta er á að kóleru- og mislingafaraldur brjótist út þar sem sjúkdómarnir smitast auðveldlega milli manna, sér í lagi þegar stór hópur fólks er á vergangi.

Malaría, stærsta dánarorsök barna í Austur-Kongó, skapar meiri ógn þegar fólk neyðist til að sofa undir berum himni án moskító-flugnanets. UNICEF óttast að fjöldi vannærðra barna muni aukast þar sem börn fá ekki þau næringarefni sem þau þurfa. Auk þess eru heimilislaus börn sérstaklega berskjölduð gagnvart ofbeldi og misnotkun. Þau eiga á mikilli hættu að vera neydd til að ganga til liðs við vopnaða hópa þar sem þau njóta ekki lengur verndar foreldra sinna, samfélagsins og skólans.

UNICEF og samstarfsaðilar efla nú neyðaraðstoð sína fyrir flóttafólkið. Vörubílar með hreinu vatni ná til 40-50 þúsund flóttamanna á hverjum degi í Kibati, 15 km. norður af Goma. En hreint vatn er nauðsynlegt til að hefta útbreiðslu kóleru og niðurgangs. Verið er að dreifa næringarríku kexi til yfir 15 þúsund barna í Kibati sem liður í að koma í veg fyrir vannæringu. Auk þess fá sjúk og slösuð börn ókeypis læknisaðstoð. Börn, sem hafa orðið viðskila við fjölskyldur sínar, er komið fyrir hjá tímabundnum fósturfjölskyldum og komið hefur verið á ferli til að finna fjölskyldur barnanna.

Þrátt fyrir mjög lítil efni hefur hreinu vatni verið komið til Rutshuru, þar sem tugþúsundir manna eru á flótta. Í gær tók UNICEF þátt í að meta þarfir fólks á því svæði. Um leið og þarfir hafa verið metnar mun neyðaraðstoð hefjast á sviði vatns og hreinlætis, næringar, verndar og menntunar.

Hjálpargögn eins og vatnsbrúsar, vatnsblöðrur og vatnshreinsitöflur eru komin á vettvang. Teppum, brúsum og plastdúkum verður dreift í þúsundatali þegar það berst með flugi í lok vikunnar. UNICEF þarf 8 milljónir dollara til að mæta brýnum þörfum fólks næstu þrjá mánuði.

Börn í Austu-Kongó hafa búið við átök og mikið óöryggi í yfir áratug. Aðeins með friði og stöðugleika verður hægt að gefa börnum í landinu tækifæri til velferðar og betra lífs. UNICEF hvetur alla hlutaðeigandi aðila að tryggja börnum frið og virða alþjóðleg réttindi þeirra.