Vissir þú að...

á 45 sekúndna fresti deyr barn af völdum malaríu. Flugnanet til að koma í veg fyrir malaríu kostar aðeins 776 krónur.

Þú ert hér:  

Mikil neyð flóttafólks í Austu-Kongó

Ástandið fer versnandi dag frá degi í Austur-Kongó. Bardagar hamla hjálparstarfi en þó hafa UNICEF og aðrar hjálparstofnanir hafið víðtæka neyðaraðstoð til að veita þúsundum flóttafólks helstu lífsnauðsynjar. Neyðaraðstoð UNICEF er á sviði vatns, hreinlætis, næringar, bólusetningar og verndar.

Neyðaraðstoð UNICEF

UNICEF og Save the Children (Barnaheill) hafa komið upp kerfi þar sem haft er uppi á fjölskyldum týndra barna og þau sameinuð. Teymi fara á milli staða þar sem flóttafólk hefst við til að finna viðskila börn. Auk þess munu heilsugæsluteymi sem fara fyrir bólusetningum UNICEF og dreifingu hjálpargagna reyna að finna viðskila börn. Öll börn, sem hægt hefur verið að bera kennsl á, hefur verið komið fyrir hjá fósturfjölskyldum þeim til verndar.

UNICEF reynir að koma í veg fyrir kólerufaraldur (í Kibati, Mugunga, o.fl.) t.d. með því að dreifa tonnum af vatni daglega til flóttafólks, koma upp vatnshreinsistöðvum, salernisaðstöðum og standa að fræðslu um hreinlæti. Sjúklingar með kóleru fá saltupplausn og önnur lyf í sérstökum miðstöðvum fyrir kólerusjúklinga (Cholera treatment centres).

Tilfelli mislinga hafa komið upp meðal flóttafólks. Bólusetningarátak gegn mislingum fyrir 9.000 börn í Kirotshe heldur áfram. Bólusetning fyrir 13.000 börn í Kibati byrjar aftur á morgun, en vegna átaka sl. föstudag reyndist ekki unnt að bólusetja. UNICEF áætlar að bólusetja um 66.000 börn til viðbótar á næstu dögum og vikum. Mislingar smitast auðveldlega og er ein helsta dánarorsök barna í slíkum aðstæðum.

Tvær flugvélar fullar af plastdúkum, bölum, og teppum lendir í Goma í dag og þar með hafa sex flugvélar komið með hjálpargögn á vegum UNICEF síðustu þrjá dagana. Þessum hjálpargögnum verður dreift til þúsunda flóttafólks á næstu dögum. Plastdúkar og teppi hjálpa til við að koma í veg fyrir öndunarfærasýkingar, en það er næststærsta dánarorsök barna í Austur-Kongó. Plastdúkarnir verða einnig notaðir til að koma upp salernisaðstöðu og skólastofum. UNICEF mun koma upp tímabundnum skólastofum og dreifa skólagögnum um leið og færi gefst á.

Vannæring barna er UNICEF áhyggjuefni. Ástandið hefur verið skoðað í Kibati og býður UNICEF eftir niðurstöðum. UNICEF undirbýr nú aukinn stuðning við fæðumiðstöðvar þar sem hættan er hvað mest á vannæringu. UNICEF rekur nú þegar tugir næringarmiðstöðva sem veita hundruðum vannærðra barna aðstoð og umönnun.