Vissir þú að...

UNICEF treystir því eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.

Þú ert hér:  

UNICEF birtir tölur yfir minnkandi barnadauða

Stofnunin kallar eftir auknu átaki til að bjarga lífum barna

©UNICEF KeníaÍ dag gerði UNICEF opinberar nýjar tölur sem sýna fram á minnkandi barnadauða á árinu 2007.

Þetta nýja mat sýnir 27 prósenta fækkun dauðsfalla barna undir fimm ára aldri, úr 93 dauðsföllum á hverjar 1000 fæðingar árið 1990, í 68 dauðsföll á hverjar 1000 fæðingar árið 2007. Í iðnríkjunum eru að meðaltali aðeins sex dauðsföll á hverjar 1000 fæðingar.

Samkvæmt þessum nýju gögnum dóu 12,7 milljónir barna undir fimm ára aldri á heimsvísu árið 1990, en árið 2007 hafði dauðsföllum fækkað í u.þ.b. 9,2 milljónir.

„Síðan 1960 hefur barnadauði lækkað um rúmlega 60 prósent, og samkvæmt þessum nýju tölum heldur sú lækkun áfram“, sagði Ann M. Veneman, framkvæmdarstjóri UNICEF. „Þrátt fyrir þennan árangur er mikið starf eftir óunnið“.

Vannæring er orsökin fyrir meira en þriðjungi þeirra 9,2 milljóna dauðsfalla barna yngri en fimm ára. Þrátt fyrir að hlutfall vannærðra barna undir fimm ára aldri hafi minnkað síðan 1990, er talið að enn þjáist um 148 milljónir barna af vannæringu í þróunarríkjunum. Til að tryggja það að þessi börn hafi tækifæri á því að komast af, þarf aukið átak til að uppfylla næringarþörf kvenna, ungabarna og barna.

Nokkur lönd hafa náð miklum árangri í að fækka dauðsföllum barna yngri en fimm ára, þ.á.m. Laos, Bangladesh, Bólivía og Nepal, sem hafa hvert um sig lækkað tíðni barnadauða um meira en 50 prósent síðan 1990. Þessi lönd eru á góðri leið með að ná þúsaldarmarkmiði sem kveður á um lækkun barnadauða um tvo þriðju á milli 1990 og 2015.

Miklar framfarir hafa einnig orðið í sumum landshlutum Afríku. Barnadauði í Eritreu hefur lækkað um 52% frá 1990 til 2007. Tíðni barnadauða í Malaví, Mósambík, Níger og Eþýópíu hefur lækkað um meira en 40% yfir sama tímabil.

Þó er hæsta tíðni barnadauða enn að finna í Afríku. Í Síerra Leóne, þar sem er hæsta tíðni barnadauða í heiminum, deyja 262 börn af hverjum 1000 áður en þau ná 5 ára aldri.

„Nýjar tölur gefa okkur vonir um að ný heilsugæsluverkefni séu að skila góðum árangri, þ.e.a.s. brjóstagjöf, bólusetning gegn mislingum, dreifing A-vítamíns, notkun malaríu flugnanets og ýmsar forvarnir gegn HIV/alnæmi,“ sagði Veneman. „Búist er við að þessi verkefni muni leiða til enn meiri lækkun á tíðni barnadauða næstu árin.“