Barnahjálpin á landsbyggðinni
UNICEF ætlar að gera víðreisn um landið í sumar og safna heimsforeldrum. Hringferðin hefst á Ísafirði og nú er hópur vaskra “götukynna” kominn til Vestfjarða þar sem þeir munu vera með athyglisverða sýningu, rölta í hús og kynna barnahjálpina fyrir gangandi vegfarendum. UNICEF hópurinn verður á svæðinu til föstudagsmorguns.
Næstu viðkomustaðir UNICEF verða Akureyri og nágrenni frá 8. til 12.júlí og Egilsstaðir og nágrenni 21.-25.júlí. Þegar hópurinn verður ekki úti á landsbyggðinni munu þau safna heimsforeldrum á fjölförnum stöðum Reykjavíkursvæðisins.
Flugfélag Íslands veitir afslátt af flugfargjöldum og Ísafjarðarbær veitti t.a.m. styrk til að standa undir kostnaði við ferðia til Vestfjarða. Rás 2 mun svo fylgjast með ferð Barnahjálparinnar um landið.
Hvað ef Ísafjörður væri í Síerra Leóne?
Ætlunin er einnig að kynna UNICEF fyrir þjóðinni og í því skyni viljum við auka sýnileika okkar úti á landi. Ísland var í efsta sæti á lífsgæðalista Sameinuðu þjóðanna 2007/2008, en Síerra Leóne var í síðasta sæti á þessum sama lista. Íslendingar hafa því mikið að gefa og þörfin er mikil.
Oft er erfitt að ímynda sér aðstæður í þeim löndum þar sem þörfin er mest og því mun UNICEF vera með stand eða farandssýningu á öllum viðkomustöðum í sumar þar sem spurt er t.d. hvað ef Ísafjörður væri í Síerra Leóne. Þannig berum við saman athyglisverðar tölur með sláandi útkomu.
UNICEF hefur staðið fyrir götukynningu á höfuðborgarsvæðinu síðustu fjögur ár og alltaf gengið vel. Í fyrra var markvisst byrjað á að fara út á landsbyggðina til að safna heimsforeldrum og í sumar gerum við víðreisn um landið!
Við vonum að undirtektir Vestfirðinga og annarra Íslendinga verði góðar í sumar.