hlutfallslega flestir heimsforeldrar eru á Íslandi eða 5% þjóðarinnar. Svíar eru samt að ná okkur... koma svo, vertu með!
Þú ert hér:
Fótboltastjarnan og velgjörðarsendiherrann David Beckham var nýlega í heimsókn í Síerra Leóne þar sem hann ferðaðist með fulltrúum UNICEF til þess að beina athygli að málefnum bágstaddra barna.
Ferðalag Beckham átti sér stað samhliða kynningu á einni aðalskýrslu UNICEF, State of the World’s Children. Skýrslan í ár útnefnir Síerra Leóne með hæstu tíðni barnadauða í heiminum.
”Í Síerra Leóne deyr eitt af hverjum fjórum börnum fyrir fimm ára afmælið,” sagði David Beckham. “Sú staðreynd er hrikaleg og sorgleg, sérstaklega með tilliti til þess að auðvelt er að koma í veg fyrir flesta barnasjúkdóma. Það að bjarga lífi þessara barna er forgangsmál fyrir UNICEF – og sem velgjörðarsendiherra vona ég að ég geti dregið athygli heimsins að þessu málefni.”
Ferðalag með tilgang
Fyrsti viðkomustaður David Beckham var heilsugæslustöð nálægt bænum Makeni þar sem hann hitti sjúklinga og gaf nýfæddu stúlkubarni bólusetningu gegn mænusótt. Meðan bifreið Beckham keyrði í gegnum bæinn hlupu tugir ungra aðdáenda eftir bílnum í þeirri von að fá að sjá eða taka mynd af einum frægasta fótbóltamanni heims.
Yfirmaður UNICEF í Síerra Leóne, Geert Cappelaere, sem nýlega heimsótti íslensku landsnefnd UNICEF, sagði komu Beckham til landsins fela í sér mikilvægan tilgang.
“Heimsókn David Beckham er mikilvæg fyrir málstað UNICEF, þá sérstaklega í heilbrigðismálum,” sagði Geert Cappelaere. “Lífsbjörg barna er eitt helsta forgangsmál UNICEF. Heimsóknin mun styðja alþjóðlegt átak okkar í því að bæta heilsufar barna og kvenna.”
”Við getum ekki lokað augum okkar fyrir stöðu barna”
Í litlu þorpi tók Beckham þátt í dreifingu moskító-neta með skordýraeitri til ungra mæðra og barnshafandi kvenna. Velgjörðarsendiherrann hitti einnig börn í þorpinu og gaf þeim áritaða fótbolta.
Með áhrifamestu viðkomustöðunum á ferðalagi David Beckham var næringarmiðstöð sem styrkt er af UNICEF. Með stuðningi UNICEF getur miðstöðin útvegað börnum lífsnauðsynlega næringu, svo sem vítamínbætta mjólk og próteinkex.
Beckham hitti hinn fimm ára gamla Foday í miðstöðinni og fylgdust þeir að hönd í hönd meðan Beckham var sýnd starfsemi miðstöðvarinnar.
”Við getum ekki lokað augunum fyrir þeim tugþúsundum barna sem deyja á hverjum einasta degi í þróunarlöndunum, stærstur hluti þeirra af viðráðanlegum orsökum,” sagði Beckham.