yfir helming dauðsfalla barna má rekja til vannæringar. Fyrir 1000 krónur getur þú greitt fyrir 16 poka af næringaríkri fæðu fyrir vannærð börn.
Þú ert hér:
Ungmennaráð UNICEF á Íslandi og íslenskir hönnuðir framleiða boli sem geta breytt lífi barna.
Sala er hafin á „bestu bolum í heimi“ til styrktar UNICEF. Hönnun bolanna er sem fyrr í höndum Kron kron og grafíska hönnuðarins Harðar Kristbjörnssonar og vísar hún í að veröldin sé eins og völundarhús þar sem sumir rati rétta leið að góðu lífi á meðan aðrir sitji fastir í öngstræti fátæktar.
Með bolunum vilja ungmennaráð UNICEF og Kron kron vekja athygli á því að í heiminum í dag standa fjöldamörg börn frammi fyrir miklum hindrunum á leið sinni að mannsæmandi lífi. Með því að ganga í bolunum sýnum við samstöðu með baráttu UNICEF við að leiða börn úr öngstrætum lífsins í átt að bættum lífsskilyrðum.
Um er að ræða verkefni ungmennaráðs UNICEF á Íslandi. Bolirnir eru seldir í verslun Kron kron, Laugavegi 63 og í jólabúð UNICEF, Laugavegi 42, 2h. Þeir fást í sjö litum og öllum stærðum, bæði á börn og fullorðna. Bolirnir kosta 2800 kr. og allur ágóði af bolasölunni rennur til UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna.