á 45 sekúndna fresti deyr barn af völdum malaríu. Flugnanet til að koma í veg fyrir malaríu kostar aðeins 776 krónur.
Þú ert hér:
Tugir þúsunda flóttamanna streyma nú yfir landamærin milli Tsjad og norðurhluta Kamerún, þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnvalda í Tsjad um að uppreisn liðinnar viku hafi verið brotin á bak aftur.
”Ástandið í Kousseri er mjög alvarlegt. Fjöldi flóttafólks er sívaxandi,” sagði yfirmaður UNICEF í Kamerún, Silvia Luciani. “Í dag eru um 58.000 flóttamenn í Kousseri og nágrenni þess í norðurhluta Kamerún.”
Flóttafólk frá N’Djamena, höfuðborg Tsjad, hafa verið að streyma yfir til Kamerún síðan ofbeldið hófst. Stjórnvöld í Tsjad hafa ákallað flóttafólkið og beðið þau um að snúa aftur heim, en það hefur ekki haft nein áhrif á straum flóttafólksins.
“Á hverjum klukkutíma bætast fleiri í hópinn”
“Við höfum ekki orðið vitni að neinni hreyfingu flóttafólks frá Kousseri aftur til N’Djamena. Þvert á móti bætast á hverjum klukkutíma fleira flóttafólk í hópinn,” sagði Silvia Luciani, sem sagði ástandið vera þrungið spennu.
“Fólk sefur út undir berum himni,” bætti hún við. “Hér er ekkert vatn, engar ábreiður, enginn matur og engin tjöld, þó UNICEF sé að reyna að útvega slíkar nauðsynjar eins fljótt og auðið er.”
Neyðarviðbragðsteymi UNICEF kom til Kousseri snemma í morgun og hefur byrjað að forgangsraða þörf fyrir aðstoð meðal kvenna og barna. Birgðir eru nú að berast til flóttamannabúðanna og heilbrigðisstarfsfólk mun byrja að útdeila bólusetningum og neyðarmatvælum á morgun. Flóttafólkið verður bólusett gegn mislingum og heilahimnubólgu, en heilahimnubólgufaraldur hefur geisað í nágrannalöndum Kamerún og Tsjad. Þörf barna fyrir vernd og menntun mun einnig vera sett í fyrsta forgang.
Flúið fótgangandi
Flóttafólkið flúði frá Tsjad yfir helgina eftir að uppreisnarhermenn lentu í átökum við her stjórnvalda.
“Við höfum miklar áhyggjur af því að fleiri muni koma,” sagði Martin Dawes, upplýsingafulltrúi Vestur-og Mið-Afríkudeildar UNICEF. “Nú er mikilvægt að setja upp miðstöð upplýsinga og komast að því hverjar þarfirnar eru og koma aðstoð til þeirra sem mest þurfa á henni að halda.”
UNICEF hefur einnig pantað ábreiður og skólagögn fyrir um það bil 10.000 börn, ásamt leikjapökkum (e. recreation kits) og fatnaði. Fjölskyldum verður séð fyrir vatnshreinsitöflum, sápu, fötum og vatnsdúnkum.
Ástandið í búðunum alvarlegt
“Þetta er bara byrjunin á neyðaraðgerðunum” sagði Martin Dawes.
Ekki einungis er ástandið í flóttamannabúðunum í Kamerún alvarlegt, heldur þarf einnig að huga að þeim 400.000 flóttamönnum sem flúið hafa til austurhluta Tsjad eftir átökin í Darfur. UNICEF og Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna hefur útvegað aðstoð, en mikil hætta er á að þar brjótist út sjúkdómar vegna bágrar hreinlætisaðstöðu.