English version

Alþjóðlegur dagur vatnsins

©UNICEF/99-0495Samkvæmt Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO) hafa sextíu og tvö prósent Afríkubúa ekki aðgang að viðunandi salernisaðstöðu, þ.e. klósetti sem heldur skólpi frá snertingu við umhverfi fólks. Alþjóðleg skýrsla samtakanna verður birt síðar á þessu ári en í tilefni af alþjóðlegum degi vatnsins, 22. mars, hafa verið birtar bráðabirgðatölur um ástand mála í Afríku. Í ár á sérstaklega að vekja athygli á þeirri staðreynd að allt að 2,6 milljarðar manna um allan heim eru ekki með aðgang að klósetti á heimilum sínum og eru þar af leiðandi berskjaldaðir fyrir fjölda sjúkdóma.

Notkun á almennilegu klósetti og handþvottur – helst með sápu – kemur í veg fyrir að bakteríur, veirur og sníkjudýr spilli vatnsbólum, jarðvegi og fæðu. Slíkt er helsta orsök niðurgangs, sem er næstalgengasta dánarorsök barna í þróunarlöndunum, og veldur öðrum alvarlegum sjúkdómum eins og kóleru, blóðögðuveiki og alvarlegum augnsýkingum (trachoma).

„Hreinlæti er hornsteinn góðrar lýðheilsu,“ segir Dr. Margaret Chan, framkvæmdastjóri WHO. „Bætt hreinlæti er veigamikill þáttur í að bæta heilbrigði og velferð. Við vitum að einfaldar og ódýrar lausnir geta dregið úr tíðni niðurgangssjúkdóma um þriðjung.“

„Næstum fjörtíu prósent mannkyns hefur ekki aðgang að salerni, og fara því á mis við vissa reisn og öryggi,“ segir Ann M. Veneman framkvæmdastjóri UNICEF. „Skortur á fullnægjandi hreinlætisaðstöðu hefur alvarleg áhrif á heilsu og félagsþroska, sérstaklega hjá börnum. Bætt hreinlæti eykur verulega líkurnar á því að Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna náist og bjargar mannslífum.“

Greiður aðgangur að salerni hefur áhrif á öryggi fólks, sérstaklega kvenna og stúlkna sem eiga á hættu að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi þegar þær fara út á nóttinni til að sinna þörfum sínum. Bætt salernisaðstaða í skólum er auk þess hvetjandi þáttur í aukinni skólasókn og dregur úr líkunum á því að börn hætti í námi, sérstaklega stúlkur.

Viðunandi salernisaðstaða á heilsugæslustöðvum getur svo dregið verulega úr tíðni sýkinga innan heilsugæslustöðva.

Þrátt fyrir að WHO og UNICEF áætli að 1,2 milljarðar manna um allan heim hafi fengið aðgang að bættri salernisaðstöðu á árunum 1990-2004, telja samtökin að 2,6 milljarðar manna – þar af 980 milljónir barna – hafi ekki aðgang að salerni heima hjá sér. Ef fram heldur sem horfir munu 2,4 milljarðar fólks vera án grundvallarhreinlætisaðstöðu árið 2015. Þau börn sem þar eru á meðal munu áfram gjalda fyrir með lífi sínu, stopulli eða engri skólagöngu, sjúkdómum, vannæringu og fátækt.