Vissir þú að...

á árinu 2006 keypti UNICEF nærri 25 milljónir moskító-flugnaneta eða 40% af heildarframleiðslu þeirra á heimsvísu. Flugnanetið kemur í veg fyrir malaríu, en 1 af hverjum 5 dauðsföllum í Afríku má rekja til malaríu.

Þú ert hér:  

Allt að 300 þúsund börn eru hjálparþurfi á Haítí

©UNICEF HaitiMiklar rigningar og flóð fylgdu í kjölfar fellibylja sem skollið hafa á strendur Haítí og nágrannaeyja á Karíbahafinu. Áætlað er að 650 þúsund manns séu hjálparþurfi, þar af 300 þúsund börn.

Fellibyljirnir Fay, Gustav og Hanna, sem fylgdu hver á eftir öðrum, hafa neytt þúsundir manna til að yfirgefa heimili sín. Margir hafa ekki getað snúið aftur fyrr en mörgum dögum síðar. Mikilvægar samgönguleiðir hafa eyðilagst, þar á meðal brýr, og hamlar það hjálparstarfi. Á Haítí er yfirvofandi hætta á stjórnmálalegu og félagslegu umróti þar sem átök brutust út í apríl síðastliðnum vegna matarskorts. Það mál er enn óleyst.

Hjálparstarf UNICEF

Vatni, mat og öðrum hjálpargögnum var hraðað til Gonaives síðasta föstudag, en borgin er talin hafa orðið verst úti í hamförunum. UNICEF og Alþjóðamatvælaáætlunin (WFP) dreifði hjálpargögnunum með þyrlu og bátum, en það reyndist eina leiðin inn í borgina. Um 70 þúsund manns munu njóta góðs af hjálpargögnunum.

UNICEF hefur þegar dreift tjöldum sem veita fjölskyldum skjól, vatnshreinsitöflur og önnur hreinlætisgögn sem koma í veg fyrir sjúkdóma sem berast með vatni, en slíkir sjúkdómar eru einn stærsti dánarvaldur barna eftir náttúruhamfarir sem slíkar. Fleiri hjálpargögn eru á leiðinni til Haítí og annarra eyja, s.s. fjölskyldu-hreinlætispakka, teppi og saltupplausn. Enn er verið að meta þarfir á Haítí, Jamaíka, Dóminíska lýðveldisins og Kúpu.

UNICEF hefur þegar fengið 1 milljón dollara til að sjá fyrir grunnþörfum fólks á fyrstu dögum neyðaraðstoðarinnar. En mögulegt er að meira þurfi að koma til svo að allir geti notið aðstoðar. Mannúðaraðstoð Evrópuráðsins (ECHO) hefur lofað 300 þúsund evrum til neyðaraðstoðar UNICEF.