Vissir þú að...

UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.

Þú ert hér:  

Hlaupa fimm maraþon og styrkja UNICEF

Reykjavík Road Runners er nafnið á hlaupahóp sem ætla sér að hlaupa í fimm stærstu maraþonum heimsins eða "World Marathon Majors" eins og þau eru nefnd á ensku. Upphafsmenn hópsins eru hlaupararnir Pétur Ívarsson og Guðmundur Guðnason en eru aðrir velkomnir að slást í hópinn.

Þeir Pétur og Guðmundur munu hefja leikinn í Berlín 28. september. Því næst liggur leiðinn til Boston næsta vor, Chicago haustið 2009, London vor 2010 og loks verður endað í New York haustið 2010.

Samhliða fyrirhuguðu þrekvirki hafa þeir félagar ákveðið að láta gott af sér leiða með því að safna áheitum til styrktar UNICEF. Þeir fjármunir sem safnast munu renna til hjálparstarfs UNICEF fyir bágstödd börn víða um heim.

Hægt er að heita á hlauparana hér.

Pétur og Guðmundur hafa hlaupið í nokkur ár og verið samstíga í þeim maraþonum sem þeir hafa tekið þátt í hingað til.

Fylgjast má með bloggi þeirra hér.