126 milljónir barna stunda lífshættulega vinnu. Vertu með okkur í liði til að breyta þessu.
Þú ert hér:
Fjárhagur UNICEF á Íslandi stendur vel þrátt fyrir lægðina sem nú gengur yfir í efnahagslífinu og þrot bankanna. Glitnir er viðskiptabanki UNICEF og eru allar innistæður geymdar inni á öruggum bankareikningum. Ekkert af fjárframlögum til UNICEF hefur því tapast.
UNICEF á Íslandi vill koma þessu á framfæri við styrktaraðila sína, fyrirtæki og einstaklinga í ljósi þeirrar stöðu sem nú ríkir í samfélaginu og umræðna um inneignir og sjóði einstaka íslenskra góðgerðarfélaga.
UNICEF er þó mjög umhugað um ástand mála á Íslandi og fylgist vel með þróun mála. Mikið atriði er að ekki dragi úr verkefnum UNICEF í þróunarlöndunum og að skjólstæðingar okkar, bágstödd börn, njóti áframhaldandi stuðnings.
Hvert framlag hér á Íslandi skiptir máli og hafa stuðningsaðilar hringt til að hækka framlag sitt eða ítrekað stuðning sinn. Ekki hefur dregið verulega úr stuðningi einstaklinga við UNICEF ef miðað við október í fyrra ólíkt því sem ætla mætti. En eins og áður sagði er UNICEF umhugað um ástandið og fylgist vel með þróun mála.