Vissir þú að...

126 milljónir barna stunda lífshættulega vinnu. Vertu með okkur í liði til að breyta þessu.

Þú ert hér:  

UNICEF bregst við neyð í kjölfar flóða í Indlandi og Nepal

©UNICEF/KhannaMikil flóð hafa eyðilagt á 250 þúsund heimila í norðurhluta Bihar á Indlandi. Um er að ræða mestu flóð á svæðinu í 50 ár. UNICEF bregst við með því að veita skjól, lyf og fleiri nauðsynjar nú þegar fólk streymir í flóttamannabúðir í fátækasta héraði Indlands. 

Um 1,4 milljónir manna á Indlandi og 70 þúsund í Nepal eru heimilislaus. UNICEF bendir á að börn eru viðkvæmust fyrir sjúkdómum og geta liðið andlegar kvalir vegna heimilisleysis og skorts á nauðsynjum.

Flóðin hófust eftir að stífla brást í Kosi ánni í Nepal. Í kjölfarið flæddi yfir varnargarða í Bihar héraði fyrir viku síðan. Heimilislausar fjölskyldur geta ekki snúið aftur heim til sín fyrr en eftir um tvo mánuði eða þar til búið er að laga varnargarðana.

,,Á slíkum tímum skiptir litlu hvernig flóðið hófst eða hverju er um að kenna. Það sem er mikilvægt er að veita hjálp til nauðstaddra. Þetta eru verstu flóð í manna minnum og mjög erfitt er fyrir yfirvöld og hjálparstofnanir að starfa í slíkum aðstæðum," sagði Daniel Toole, yfirmaður UNICEF í S-Asíu.

,,Forgangsverkefni UNICEF er að koma lífsnauðsynlegum hjálpargögnum til fólks og tryggja að börn og konur fái lyf, hreint drykkjarvatn og aðgang að hreinlætisaðstöðu. Auk þess munum við, ásamt yfirvöldum í landinu og Matvælaáætlun S. þ., tryggja fólki matvæli," sagði Toole og bætir við að jafnvel án neyðarástands er S-Asía eitt af fátækustu svæðum heims. ,,Þessi flóð geta skolað burt þeirri litlu von sem fjölskyldur hafa um að komast af."

Indland
Yfir 1 þúsund þorp í 13 svæðum í norðurhluta Bihar héraðs hafa orðið fyrir áhrifum af flóðunum og fólk þar hefur misst heimili sín. Ríkisstjórn Indlands áætlar að allt að 2 milljónir manna séu nauðþurftar. Opinberar tölur segja að fjöldi látinna sé 55, en búist er við að fleiri liggi í valnum.

Flóðin hafa skemmt vegi og sömuleiðis aðgang að vatni og rafmagni. Nauðsynlegum hjálpargögnum, eins og matvælum, er nú dreift með bátum.

UNICEF hefur áhyggjur af því að flóðin muni hafa alvarleg áhrif á konur og börn sem nú þegar búa í mikilli fátækt og neyð. Einnig veldur það alvarlegum áhyggjum að fjöldi fólks streymir nú í flóttamannabúðir sem eykur líkur á smitsjúkdómum. Ekki eru nægar vatnsdælur eða næg salerni til að anna fjöldanum, en það gæti leitt til mjög hættulegra aðstæðna þar sem smitsjúkdómar geta auðveldlega brotist út.

Heimilislaus börn, þungaðar konur eða konur með barn á brjósti, ásamt öldruðuð fólki, þurfa að takast á við enn meiri erfiðleika sökum mjög hás hitastigs í veðri. Hitinn og lítill aðgangur að hreinu vatni og lélegri salernisaðstöðu getur leitt til alvarlegra sjúkdóma sem berast með vatni. Tilfelli niðurgangs og hita hafa þegar komið upp.

Nepal
Í suðausturhluta Nepals hafa flóðin leitt til mjög mikilla skemmda þar sem talið er að 70 þúsund manns hafi misst heimili sín. Auk þess hafa yfir 5 þúsund manns farið frá Bihar yfir til Nepal í leit að skjóli frá flóðunum. Margir hverjir hafast við í skólum, en 30% þeirra eru börn.

Fólk þarf nauðsynlega á hreinu vatni að halda, hreinlætisvörum, skjóli og matvælum (sér í lagi fyrir börn og konur með barn á brjósti).

Viðbrögð UNICEF
Á Indlandi hefur UNICEF framkvæmt svokallað hraðmat (e. rapid assessment) á aðstæðum fólks í þremur af verst stöddu héruðum landsins og veitt nauðsynleg hjálpargögn til 8 þúsund fjölskyldna. UNICEF starfar með yfirvöldum á svæðinu og samstarfsaðilum við að koma tjöldum, vatnsbrúsum, hreinlætisvörum, vatnshreinsitöflum, 30 þúsund saltupplausnum og fleiri hjálpargögnum til fólks. UNICEF heldur áfram að starfa með yfirvöldum og frjálsum félagasamtökum á svæðinu til þess að koma hjálpargögnum til þeirra sem mest þurfa á þeim að halda.

Í Nepal hefur UNICEF nú þegar veitt yfir 10 þúsund manns hjálpargögn í tímabundnum búðum og mun reyna að ná til allt að 55 þúsund manns með hjálpargögn. UNICEF og samstarfsaðilar hafa þegar dreift 500 teppum, 100 plastdúkum, yfir 2.000 tjöldum, 13.200 pokum af saltupplausnum, 8.000 rúmnetum með skordýraeitri, tæplega 4.900 pökkum af hreinlætisvörum, 20 skyndihjálparpökkum, 325 pökkum af eldunaráhöldum og 90 skólapökkum. 

UNICEF hefur einnig dreift 312.000 vatnshreinsitöflum, 5.500 fötum, 3.700 könnum og 585 flöskum af vatnshreinsiefni. UNICEF er um þessar mundir að koma upp 20 vatnsdælum, 760 salernum, 60 ruslatunnum og 320 baðrýmum, sér í lagi fyrir konur og ungar stúlkur. Einnig mun UNICEF koma tímabundnum salernum fyrir í flóttamannabúðum.