Vissir þú að...

á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.

Þú ert hér:  

Aðstoð vegna flóða í Mósambík

©UNICEF/Thierry Delvigne JeanÍ janúar hafa flóð í ánni Zambesi í Mósambík hrakið tugþúsundir manna frá heimilum sínum, þar af er helmingurinn börn. UNICEF veitir víðtæka neyðaraðstoð.

Þrír eru látnir eftir hamfarirnar. Heimili fjölda manna eru eyðilögð, uppskera ónýt og skólar og vegir eru eyðilagðir. Á fimmta tug þúsunda manna voru flutt í neyðarskýli eða miðstöðvar.

Flóðin eru afleiðing mikilla rigninga í sunnanverðri Afríku. Neyðin leggst verst á þá sem minnst mega sín.

UNICEF leggur áherslu á að koma hreinu vatni til nauðstaddra og fræða fólk um hreinlæti til að koma í veg fyrir kólerufaraldur eða aðra sjúkdóma sem kunna að berast með vatni.

UNICEF dreifir einnig malaríu-flugnanetum, en malaría er helsti dánarvaldur barna í Mósambík. Einnig hefur UNICEF dreift ábreiðum, tjöldum og skólagögnum og séð til þess að börn geti snúið aftur til skóla eins fljótt og hægt er.