hlutfallslega flestir heimsforeldrar eru á Íslandi eða 5% þjóðarinnar. Svíar eru samt að ná okkur... koma svo, vertu með!
Þú ert hér:
Þessar fjórar harðduglegu stelpur, Birta Haraldsdóttir, Elín Ísold Pálsdóttir, Sunna Margrét Tryggvadóttir og Dóróthea María Jóhannsdóttir, héldu á dögunum tombólu fyrir utan Bónus á Laugaveginum. Þær söfnuðu alls 1075 krónum fyrir UNICEF.
Við kunnum þessum kraftmiklu stelpum bestu þakkir fyrir. Þess má geta að framlag þeirra myndi t.d. nægja til að bólusetja tvö börn gegn hættulegustu barnasjúkdómunum, sem gæti jafnvel bjargað lífi þeirra. Það er því deginum ljósara að hægt er að hafa áhrif í heiminum ef maður grípur til aðgerða!