Vissir þú að...

UNICEF treystir því eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.

Þú ert hér:  

Vináttuheimsókn til Gíneu-Bissá lokið

©UNICEF ÍslandÍslensk sendinefnd var stödd í opinberri vináttuheimsókn til Gíneu-Bissá dagana 3.–9. mars. Tilgangur heimsóknarinnar var að efla tengslin milli landanna tveggja en fyrir fjórum árum hóf UNICEF á Íslandi að styrkja þróunarverkefni í hinu sárfátæka Vestur-Afríkuríki.

Íslenska sendinefndin var skipuð Jóhannesi Jónssyni og Hreini Loftssyni úr stjórn Baugs Group, Björgvini G. Sigurðssyni viðskiptaráðherra, Katrínu Júlíusdóttur alþingiskonu, Helga Ágústssyni sendiherra og Agli Ólafssyni tónlistamanni, ásamt þeim Margréti Jónsdóttur, Geir Gunnlaugssyni og Þorláki Karlssyni frá Háskólanum í Reykjavík. Einnig var Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, með í för.

Umfangsmikill stuðningur íslenskra einkaaðila við þróunaraðstoð í landinu

©UNICEF Ísland Með stuðningi einkaaðila á Íslandi, svo sem Baugs Group, FL Group og Fons, hefur UNICEF í Gíneu-Bissá getað byggt skóla og leikskóla, eflt heilsugæslu og bætt aðgengi að hreinu vatni, joðbætt salt og dreift malaríunetum. Í heildina hefur UNICEF rekið verkefni í landinu með stuðning frá Íslandi fyrir 3.550.000 bandaríkjadali. Árangurinn af þessum aðgerðum hefur verið gríðarlegur og mörg þúsund börn hafa notið góðs af.

  „Það er ánægjulegt að sjá hvað fjárstuðningur Baugs Group hefur nýst vel. Við erum stolt af því að taka þátt í svona mikilvægu starfi þar sem árangurinn er svo sýnilegur,“ sagði Jóhannes Jónsson um stuðning Baugs Group og samstarf fyrirtækisins við UNICEF.

Bissáskum þingkonum boðið í kvöldverð

©UNICEF Ísland Hópurinn átti fund með helstu ráðherrum landsins, meðal annars forseta og forsætisráðherra, föstudaginn 6. mars. En íslenska ríkið hefur heitið stuðningi við verkefni UNICEF um eina milljón bandaríkjadali næstu þrjú árin. Einnig buðu Íslendingarnir bissáskum þingkonum í kvöldverð til að ræða jafnréttismál og stöðu kvenna í Gíneu-Bissá. Var sjónum sérstaklega beint að frumvarpi gegn umskurði kvenna sem nú er til umræðu á bissáska þinginu. Katrín Júlíusdóttir ávarpaði svo þingið á föstudeginum, en þá voru umræður helgaðar málefnum kvenna í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna.

Stuðningur við menningarstarf í Gíneu-Bissá

Á laugardeginum hélt hljómsveitin Super Mama Djombo útgáfutónleika sína en hljómsveitin tók upp nýja hljómplötu í hljóðveri Sigur Rósar í nóvember síðastliðnum. Egill Ólafsson tók lagið með hljómsveitinni á tónleikunum, en hann ljáir einmitt rödd sína í einu laganna á nýju hljómplötunni. Á tónleikunum voru Íslendingum færðar sérstakar þakkir fyrir stuðning í þágu menningarstarfs í landinu.

©UNICEF ÍslandUm Gíneu-Bissá

  Gínea-Bissá er stundum kallað „landið sem gleymdist” vegna þess hve afskipt það hefur verið í alþjóðlegri þróunarsamvinnu. Gínea-Bissá er meðal tíu fátækustu ríkja heims. Samkvæmt skýrslu Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna um lífsgæði frá 2007 er Gínea-Bissá í 175. sæti af þeim 177 löndum sem skýrslan nær til. Til samanburðar er Ísland í 1. sæti. Þessi veruleiki endurspeglast meðal annars í skelfilega hárri dánartíðni bissáskra barna en því sem næst fjórða hvert barn nær ekki fimm ára aldri í landinu. Aðeins 54% barna á grunnskólaaldri, 7-12 ára, er skráð í skóla. Stúlkur fara sérstaklega á mis við menntun enda er aðeins um fjórðungur kvenna í Gíneu-Bissá læs.