Vissir þú að...

UNICEF bólusetur 100 milljónir barna á ári um allan heim. Talið er að það bjargi lífi 2,5 milljóna barna.

Þú ert hér:  

Heimsþing gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum

Um 3000 þátttakendur frá yfir 125 löndum koma saman á heimsþingi í Rio de Janeiro í Brasilíu dagana 25.-28. nóvember til að deila reynslu sinni og hugmyndum í baráttunni gegn kynferðislegri misnotkun á börnum.

„Kynferðisleg misnotkun veldur bæði andlegum og oft líkamlegum örum og dregur úr möguleikum barna til að lifa lífu sínu af reisn,“ sagði framkvæmdastjóri Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, Ann M. Veneman. „Ekkert land og ekkert svæði er óvarið og allir verða að axla ábyrgð.“

Kynferðisleg misnotkun er brot á réttindum barna til umönnunar og verndar. Þingið mun líta til mismunandi tegundar af kynferðislegu ofbeldi á börnum, þar á meðal verður rætt um misnotkun innan fjölskyldunnar, giftingar barna, kynferðisleg misnotkun á börnum sem starfa sem húshjálp, börn í kynlífsiðnaðinum, barnaklám og misnotkun gegn börnum á Netinu.

Ofbeldismenn halda áfram að finna ný tól og tæki til að ná til barna, þar á meðal í gegnum Netið og með nýrri kynslóð farsíma. Fullorðnir geta setið um börn á spjallrásum og nota Netið til að setja inn eða hlaða niður barnaklámi.

Sjö árum eftir að heimsþingið var haldið í Yokohama í Japan árið 2001, þar sem áhersla var lögð á misnotkun á börnum í kynlífsiðnaðinum, mun heimsþingið í Brasilíu ræða leiðir til að berjast gegn misnotkun á börnum tengdu heimilisofbeldi, kynferðislegu ofbeldi af hálfu trúarleiðtoga, kennara, friðargæsluliða og vopnaðra hópa á stríðstímum.

„Kynferðislegt ofbeldi er ein mesta valdbeiting sem um getur,“ sagði Veneman. „Fyrir nokkrum árum hitti ég 16 ára stúlku í Rúanda sem spurði mig mjög ákveðið; hvað ætlar þú að gera til að stöðva nauðganirnar? Þetta er spurning sem við verðum öll að svara í sameiningu.“