í dag eru 250.000 börn þvinguð til vopnaðra átaka. UNICEF beitir áhrifum sínum til að frelsa börn undan vopnuðum átökum og aðlaga þau samfélaginu að nýju.
Þú ert hér:
„Við hlupum upp á hæð þegar vatnsborðið hækkaði,” útskýrir Kaung Myat, 12 ára drengur, þar sem hann stendur við rústir bambuskofans sem hann bjó í ásamt fjölskyldu sinni í þorpinu Gyo Phyu, í Yangon sýslu í Mjanmar.
Öllum eigum fjölskyldunnar skolaði burt þegar hvirfilbylurinn Nargis reið yfir láglent ósasvæði Irawaddy árinnar fyrir rúmri viku. Kaung á engin orð til að lýsa stöðu sinni í dag. Sem betur fer hafa hann og bróðir hans, Aung Myint Myat, 8 ára, fundið nýjan stað til að búa á. Helsta umhugsunarefni drengjanna er hvenær skólinn hefjist á ný svo þeir geti endurheimt rútínu hversdagsins.
Þessu umhugsunarefni deilir UNICEF með drengjunum. Áætlað er að skólaönnin hefjist fyrsta júní, en þar sem talið er að 90 prósent skólanna á svæðinu hafi orðið fyrir miklum skemmdum er ljóst að um gríðarstóra áskorun er að ræða.
Öruggt umhverfi fyrir börn
Yfirmaður menntamála hjá UNICEF, Cream Wright, segir að tryggja skuli börnunum sem búi á hamfarasvæðunum öruggt athvarf eins fljótt og auðið er. „ Þau þurfa líka öruggt athvarf og stuðning til að lækna þann sálræna og félagslega skaða sem þau hafa orðið fyrir – ásamt því að hefja námsferlið að nýju."
„Það sem er mikilvægast við skólagöngu og menntun í aðstæðum sem þessum er að hún verður grundvöllurinn fyrir því að börnin finni aftur fyrir eðlilegu ástandi,“ bætir Dr. Wright við. „Skólagangan býr til aðstæður þar sem börnin finna fyrir öryggi. Forgangsverkefnið er ekki kennsla og nám, heldur að veita börnunum öruggt umhverfi.”
UNICEF hefur þegar byrgt sig upp af byggingarefni á vettvangi og er í stakk búið til að hefja viðgerðir á minna skemmdum skólum. Þar sem skólabyggingar hafa eyðilagst kemur stofnunin á fót öruggum skólasvæðum í tjöldum og/eða skýlum.
Upplýsingar og menntun
UNICEF mun útvega fjölskyldum á hamfarasvæðunum trekkjanleg útvarpstæki (útvarpstæki með snúningsrafal) þannig að jafnvel þótt börn eigi ekki kost á að stunda fullt nám þá hljóti þau a.m.k. einhverja upplýsingagjöf.
„Fræðsluútvarp getur verið mjög öflugt tæki til upplýsingar og menntunar,” segir Dr. Wright. „Það byrjar á leikjum og færist svo yfir í formlegri kennslu. Á vissan hátt er því hægt að endurvekja nám barnanna á meðan við erum að koma upp öruggum skólasvæðum og foreldrar þeirra finna að eitthvað er að komast í eðlilegt horf í lífi barna þeirra.”
Skóli í tösku
Skólinn sem Kaung og Aung ganga í er einn af u.þ.b. þrjú þúsund skólum í Mjanmar sem hafa skemmst mikið í hvirfilbylnum og flóðunum sem fylgdu í kjölfarið. Menntun 500 þúsund barna hefur raskast af völdum hamfaranna í landinu.
Sem svar við því hefur UNICEF í Mjanmar pantað mikið magn af ‘skólum í tösku’ (e. school in a bag), skólatöskum sem innihalda námsgögn og leikföng. Þessar sérstæðu skólatöskur hafa áður verið notaðar á hamfarasvæðum með góðum árangri.
UNICEf heldur áfram að senda hjálpargögn til Mjanmar. Frá birgðastöðinni í Kaupmannahöfn koma sjúkragögn, salt- og sykurupplausn sem kemur í veg fyrir ofþornun af völdum niðurgangs, grímur og hanska til að koma í veg fyrir sjúkdómssmit, o.fl. Frá Dubai eru send tæki til vatnshreinsunar og starfsmenn UNICEF í Tælandi eru að pakka sendingu af ‘skóla í tösku’ sem mun hjálpa börnum að hefja nám á ný eins fljótt og auðið er.
UNICEF er í samstarfi við yfirvöld í Mjanmar og Rauða krossinn í Mjanmar við að dreifa hjálpargögnunum til fólks.
Nánar um ástandið í Mjanmar hér.