UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.
Þú ert hér:
Á morgun mun ungt fólk frá öllum G8 löndunum og þróunarlöndum hefja fjórða árlega „Junior 8“ fundinn í Chitose í Japan. Málefnin, sem tekin verða fyrir, eru svipuð þeim sem leiðtogar G8 munu taka fyrir á fundi sínum í næstu viku í Japan. Þannig hafa ungmennin tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri fyrir fund helstu leiðtoga heims.
Alls munu 39 ungmenni frá G8 löndunum og þróunarlöndunum koma saman í heila viku til að ræða þrjú megin atriði; loftslagsbreytingar, velferð barna, HIV og alnæmi og fátækt og þróunarmál með áherslu á Afríku. Þann 7. júlí munu ungmennin fá tækifæri til að koma málefnaskrá sinni til leiðtoga G8 fundarins. Ungmennin munu hvetja leiðtoga G8 fundarins til að efna loforð sín gagnvart framtíðarkynslóð þessa heims.
Heimasíða fundarins er www.j8summit.com.