Vissir þú að...

93 milljónir barna hafa ekki tækifæri til að ganga í skóla – meirihluti þeirra eru stúlkur.

Þú ert hér:  

Harður jarðskjálfti í Pakistan

©UNICEF/RybergTalið er að 160 manns hafi látist þegar jarðskjálfti, 6,4 á Richter, reið yfir suðvesturhluta Pakistan laust eftir klukkan fjögur að staðartíma (23:09 GMT á þri.). Starfsfólk UNICEF er komið á vettvang og mun meta aðstæður og þarfir fólks. Sömuleiðis er þegar hafinn flutningur á hjálpargögnum frá birgðastöð í Pakistan.

Jarðskjálftinn var mjög harður og fjöldi heimila eyðilögðust. Skjálftinn olli aurskriðu sem talin er hafa sett heilu þorpin á kaf. A.m.k. þrír eftirskjálftar hafa mælst. Talið er að tala látinna muni hækka.

Jarðskjálftinn varð í héraðinu Balochistan nálægt borginni Quetta. Svæðið sem talið er að hafi orðið verst úti, Ziarat, er nokkuð strjálbýlt (miðað við önnur svæði í Pakistan) en þar búa um 50 þúsund manns.

Óskað hefur verið eftir teppum, mat, lyfjum og hreinu vatni, sem UNICEF hefur þegar hafið flutning á.