UNICEF bólusetur 100 milljónir barna á ári um allan heim. Talið er að það bjargi lífi 2,5 milljóna barna.
Þú ert hér:
Sala á jólakortum, leikföngum og gjafavörum UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, hefst í dag mánudaginn 3. nóvember með opnun jólabúðar UNICEF að Laugavegi 42.
„Um leið og þú gleður ástvini með jólakorti eða gjöf úr búðinni ert þú að styðja við verkefni UNICEF. Þannig ert þú í raun að gefa tvöfalda gjöf og nú er rétti tíminn til að gefa gjafir sem skipta máli,“ sagði Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.
Sala á jólakortum var fyrsta fjáröflunin sem UNICEF stóð fyrir meðal einstaklinga og er enn traustur grunnur að starfi Barnahjálparinnar um allan heim. Jólakortin hafa verið seld í sjálfboðavinnu hér á landi í næstum hálfa öld.
Jólabúð UNICEF verður opin alla virka daga í nóvember, kl. 12-18. Frá og með aðventu verður einnig opið á laugardögum. Jólakort UNICEF eru einnig seld í verslunum Pennans og Eymundsson um land allt, í The Pier og víðar. Nánar á www.unicef.is/jolakort.
Gjafavörur UNICEF eru unnar af félagslega ábyrgum fyrirtækjum í Afríku og Asíu. Þannig geta kaupendur verið vissir um að börn séu ekki notuð við framleiðslu vörunnar, að engin náttúruspjöll séu unnin af viðkomandi fyrirtæki og að fyrirtækið sé ekki tengt misferli eða spillingu. Í sumum tilvikum veita fyrirtækin sérstaklega bágstöddum konum atvinnutækifæri og þannig veitum við fjölskyldum þeirra betri lífsgæði. Með því að styrkja við slíka framleiðslu stendur UNICEF einnig vörð um handverk og menningu þjóða.
Í yfir 60 ár hefur UNICEF verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn. UNICEF starfar á vettvangi í nær 160 löndum og svæðum og stendur vörð um líf barna frá fæðingu til fullorðinsára. UNICEF útvegar flestar bólusetningar til barna í þróunarlöndunum, styður heilsugæslu- og næringarverkefni fyrir börn, veitir börnum menntun og vernd gegn ofbeldi, misnotkun og HIV/alnæmi. UNICEF treystir eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja og ríkisstjórna. Með því að kaupa jólakort og gjafavörur UNICEF tekur fólk þátt í þessum mikilvægu verkefnum með okkur og færir börnum um allan heim gleði og von.
Pantanir í síma 562 6262 eða á kort@unicef.is.