árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.
Þú ert hér:
Sala á glæsilegum jólakortum og gjafavörum UNICEF til fyrirtækja og stofnana er hafin. UNICEF hvetur fyrirtæki og stofnanir til að panta með góðum fyrirvara og bendum við á að þau sem panta kort fyrir 1. nóvember fá 10% afslátt. Jólabúð UNICEF opnar að Laugavegi 42 þann 3. nóvember.
Nú er tími til að gleðja aðra og láta gott af sér leiða. Allur ágóði af sölu jólakorta og gjafavöru UNICEF rennur til bágstaddra barna.
Ef fyrirtæki óska þess að prenta eigin texta á kortin bjóðum við upp á að senda kortin beint til prentsmiðju. Afgreiðslutími jólakorta er 8-10 dagar.
Pantið með því að senda tölvupóst á kort@unicef.is eða hringja í síma 562 6262 og gefið upp vörunúmer og fjölda. Við sendum reikning með vörunni eða á þann stað sem viðkomandi óskar. Hægt er að sækja kortin eða vöruna á skrifstofu UNICEF að Laugavegi 42 eða fá hana senda. Sendingarkostnaður greiðist þó af viðtakanda.
Skoðið úrval jólakorta fyrir fyrirtæki í pdf-skjali hér.
Skoðið sýnishorn af dagbókum og gjafavörum sem henta fyrirtækjum og stofnunum hér.
Nánari upplýsingar um sölu jólakorta og gjafa fyrir fyrirtæki hér.
Um jólakort og gjafavörur UNICEF
Jólakort Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, hafa verið seld á Íslandi í næstum hálfa öld. Þau eru mikilvægur liður í fjáröflun okkar en allur ágóði af sölu kortanna rennur til verkefna Barnahjálparinnar.
Gjafavara UNICEF er mjög vönduð og á góðu verði. Þú getur einnig verið viss um að ekkert í framleiðsluferli vörunnar sem við seljum orki tvímælis; að börn hafi ekki verið notuð við framleiðslu hennar, að engin náttúruspjöll séu unnin af framleiðslufyrirtækinu og að fyrirtækið sé ekki tengt misferli eða spillingu. Með því að kaupa vöru frá UNICEF styrkir þú svo að sjálfsögðu gott málefni.