Vissir þú að...

UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.

Þú ert hér:  

Kaffi til styrktar UNICEF




Á næstu tveimur vikum mun fjölda íslenskra fyrirtækja standa til boða að kaupa gæðakaffi frá Te & Kaffi og styrkja í leiðinni UNICEF. 20% af andvirði kaffisins rennur til UNICEF og verður söfnunarfénu varið í hjálparstarf samtakanna fyrir börn um allan heim.

Íslenskum fyrirtækjum býðst nú að kaupa gæðakaffi frá Te & Kaffi og styrkja UNICEF í leiðinni. Um er að ræða kaffitegundina Fazenda da Lagoa frá Brasilíu og rennur 20% af söluandvirði þess til UNICEF. Fazenda da Lagoa er úrvalskaffi sem er mjúkt á bragðið, með góða fyllingu og gott eftirbragð. Brennslustig kaffisins er meðalristun og hentar tegundin í allar tegundir kaffivéla. Búskaparstefna framleiðanda Fazenda da Lagoa gengur út á stuðning við bændur, jafnt með samfélagslegum verkefnum sem og stuðningi við kaffirækt þeirra.

Um er að ræða sölu í gegnum síma og er framkvæmdaaðili símasölunnar Miðlun ehf.