þegar neyð skellur á leiðir UNICEF oftast alþjóðlegt hjálparstarf í vatns- og hreinlætisverkefnum, en með því að tryggja hreinlæti og aðgang að heilnæmu vatni má koma í veg fyrir sjúkdómsfaraldra.
Þú ert hér:
Þegar fjölskylda Yvonne flúði ofbeldið í þorpinu þeirra, missti hin átta ára gamla stúlka heimili sitt, dýrmætu plasthálsfestina sína, skólabúninginn sinn og skólastofuna.
“Við eigum ekki mikið,” sagði hún, “en við höfðum að minnsta kosti alltaf skólann.”
Ofbeldisaldan sem reið yfir Kenía eftir forsetakosningarnar í desember síðastliðnum átti sér stað um leið og börn eins og Yvonne hófu skólaárið að nýju. UNICEF lítur á menntun sem undirstöðuatriði í verndun barna, og menntun er þannig mikilvægt atriði í hjálparstarfi UNICEF til þeirra hundruða þúsunda kenískra barna sem eru verndar þurfi.
Í síðustu viku fór Yvonne loksins aftur í skóla – en nú var skólinn í formi tjalds sem UNICEF reisti í neyðarbúðum fyrir þá sem flúðu ofbeldið í Rift Valley. Yvonne var himinlifandi.
“Ég á tvo kjóla sem mamma mín bjargaði úr brennandi húsinu okkar,” sagði hún. “Þessi er uppáhaldið mitt. Hann er sunnudagskjóllinn minn, en það að byrja aftur í skólanum var svo sérstakt tilefni að mamma leyfði mér að vera í honum í skólanum.”
Skólastofan sem griðastaður
UNICEF sækist nú eftir 6,6 milljónum bandaríkjadala, eða 430 milljónum íslenska króna, til neyðaraðgerða í Kenía. Mest af því fjármagni myndi vera nýtt í verndun barna, menntaverkefni og aðstoð til handa enn fleiri börnum sem eru hjálparþurfi.
”Skólastofan er griðastaður fyrir börn eins og Yvonne, sem eru svo fjöldamörg,” sagði yfirmaður UNICEF í Kenía, Olivia Yambi. “Þar er að finna öryggi og þar geta börnin leikið sér og lært og þannig unnið sig út út þeim hörmungum sem þau hafa gengið í gegnum.”
Fleiri en 300.000 Keníabúar hafa þurft að flýja heimili sín síðustu sex vikur. Allt að 1.000 hafa látið lífið. UNICEF hefur áætlað að 150.000 börn búi nú í neyðarbúðum sem dreifðar eru um allt landið – meira en helmingur þessara barna eru undir fimm ára aldri.
Raunverulegur árangur á erfiðleikatímum
Ofbeldishrinan í Kenía gerðist svo sviplega að fjöldi fjölskyldna þurfti að flýja heimili sín með aðeins það sem þau gátu borið. Þessar fjölskyldur búa nú til bráðabirgða á ökrum, bílastæðum, í skólum og kirkjum. Salerni eru ofnýtt og óþrifaleg, og matvæli eru af skornum skammti. Þetta eru fjölskyldurnar sem UNICEF sækist eftir stuðningi fyrir.
Á síðasta mánuði í Kenía hefur UNICEF:
-útvegað næringarrík matvæli til 70% barna í neyðarbúðum,
-tryggt að fleiri en 15.000 börn ganga nú í skóla í UNICEF tjöldum,
-útvegað aðgang að hreinu vatni til handa 50.000 manns,
-útvegað 50.000 fjölskyldupakka, sem í eru ábreiður, segldúkar, pottar og tæki til matargerðar .
“Við höfum náð virkilega góðum árangri á stuttum tíma og unnið bug af gríðarlegum erfiðleikum,” sagði Yambi. “En við þurfum að aðstoða enn fleiri börn og þau eru hjálparþurfi í dag.”