Vissir þú að...

í dag eru 250.000 börn þvinguð til vopnaðra átaka. UNICEF beitir áhrifum sínum til að frelsa börn undan vopnuðum átökum og aðlaga þau samfélaginu að nýju.

Þú ert hér:  

Kólerufaraldur geisar í Gíneu-Bissá

©UNICEF/PirozziKólerufaraldur geisar nú í litla vestur-afríkuríkinu Gíneu-Bissá, en alls hafa yfir 7 þúsund tilfelli greinst og 133 manns látist síðan í sumar. UNICEF og Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) vinna með yfirvöldum og frjálsum félagasamtökum til að stemma stigu við útbreiðslu sjúkdómsins.

UNICEF hefur aukið við aðstoð sína á sviði vatns og hreinlætis vegna faraldursins. UNICEF þjálfar heilbrigðisstarfsfólk til að annast sjúka, vinnur að því að koma á betra hreinlæti og draga úr þeim félagslega neikvæða stimpli sem umlykur kóleru.

Kólera smitast aðallega í gegnum mengað vatn og mat. Langtímalausn við vandanum felst því í að útvega aðgang að hreinu vatni og viðunandi hreinlætisaðstöðu.

Fyrr í mánuðinum gaf UNICEF hjálpargögn sem ætlað er að draga úr mengun vatnskerfisins og í vatnsbrunnum í höfuðborginni, Bissá, en þar hafa flest tilfellin komið upp eða tveir þriðju hlutar tilfella.

Alls hafa 7.166 tilfelli greinst og þar af yfir 3.000 í september. Tala látinna hefur aukist úr 96 í 133 síðan í byrjun september.Kólerufaraldrar koma upp reglulega í Gíneu-Bissá, sér í lagi á regntímanum. Árin 2005-2006 létust um 400 manns vegna kólerufaraldurs. Innviðir vatnsveitu í landinu eru litlir sem engir.