Vissir þú að...

126 milljónir barna stunda lífshættulega vinnu. Vertu með okkur í liði til að breyta þessu.

Þú ert hér:  

Latabæjarhlaup til styrktar UNICEF

©UNICEF ÍslandÞann 23. ágúst næstkomandi verða smáir en knáir hlauparar ræstir í Latabæjarhlaupinu. Mun það vera í þriðja skiptið sem hlaupið er haldið samhliða Reykjavíkurmaraþoni Glitnis. Eins og í fyrra er yfirskrift hlaupsins „Börn hlaupa fyrir börn“ og rennur þátttökugjald óskipt til verkefna UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. 

Latabæjarhlaupið er 1 km að lengd og ætlað börnum 9 ára og yngri en foreldrar og forráðamenn geta hlaupið með börnunum. Hlaupið verður á svæðinu fyrir framan Háskóla Íslands. Allir þátttakendur fá Latabæjarbol sem er sérhannaður fyrir hlaupið og er hann afhentur með keppnisgögnum í Laugardalshöllinni 22. ágúst.

Boðið verður upp á fjölbreytta barnaskemmtun á svæðinu meðan á hlaupinu stendur og er upphitunin í sterkbyggðum höndum Íþróttaálfsins. Nánari upplýsingar um dagskrá hlaupsins og fyrirkomulag má nálgast hér. Hér er svo hægt að skrá sig

3,5 milljónir söfnuðust 2007
Árið 2007 tóku hvorki fleiri né færri en 4.223 börn á aldrinum 0-9 ára þátt í Latabæjarhlaupinu í glampandi sól og frábærri stemningu. Með þátttöku sinni söfnuðu þau hátt í 3,5 milljónum króna sem er ómetanlegur styrkur fjölda bágstöddra barna um allan heim.

UNICEF kann skipuleggjendum hlaupsins, Glitni og Latabæ kæra þökk fyrir að gefa íslenskum börnum tækifæri til að styrkja svo verðugt málefni með svo uppbyggjandi hætti.