UNICEF er á svæðinu fyrir, á meðan og eftir að neyð skellur á. Sem heimsforeldri ert þú með okkur allan tímann.
Þú ert hér:
Samkvæmt nýjum upplýsingum urðu yfir 10.000 skólabyggingar í Sichuan fyrir miklu tjóni í jarðskjálftanum sem reið yfir héraðið þann 12. maí síðastliðinn. Þar af eyðilögðust næstum 7.000 skólar gjörsamlega. UNICEF áætlar að fjöldi þeirra barna sem líða fyrir ástandið hlaupi á milljónum. Flest þessara barna reyna nú að halda námi áfram í bráðabirgðaskýlum og tjöldum, en í því samhengi er erfitt að fá nákvæmar tölur.
„Við erum afar ánægð með samvinnu sjórnvalda, einkafyrirtækja og sjálfboðaliða sem vinna þrotlaust að því að koma upp bráðabirgðakennslustofum út um allt héraðið,“ sagði David McLoughlin, starfsmaður UNICEF í Kína. „Það er einnig mjög mikilvægt að sjá til þess að börnunum berist viðeigandi skólagögn sem og að tryggja aðgengi að heilnæmu vatni og fullnægjandi hreinlætisaðstöðu.“
Menntayfirvöld í Kína hafa sett áframhaldandi skólastarf í forgang. Mörgum nemendum, sem búa í afskekktum samfélögum, hefur verið útvegað skólapláss í nálægum bæjum og borgum. Flestir skólar eru nú tvísetnir til að standa undir auknum fjölda nemenda.
„Sú áhersla sem menntayfirvöld hafa lagt á að koma börnum aftur í skóla er okkur mikið ánægjuefni,“ sagði Dr. Yin Yin Nwe, yfirmaður UNICEF í Kína. „Það er mikilvægur þáttur í að koma lífi barna í eðlilegar skorður."