45% þungaðra HIV smitaðra kvenna fá nú lyf til að koma í veg fyrir að ófædd börn þeirra fái veiruna, samanborið við 24% árið 2006. Þetta er árangur sem skiptir máli. Vertu með.
Þú ert hér:
Dauðsföll af völdum mislinga hafa lækkað um 74% á heimsvísu milli áranna 2000 til 2007, frá 750 þúsund til 197 þúsund. Að auki hefur dauðsföllum vegna mislinga fækkað um 90% í Miðausturlöndum, en það eru lönd eins og Afganistan, Pakistan, Sómalía og Súdan, frá 96 þúsund niður í 10 þúsund á sama tímabili. Svæðið nær þar með svo um munar markmiði Sameinuðu þjóðanna um að draga úr dauðsföllum vegna mislinga um 90% fyrir árið 2010.
Tilkynnt var um þetta í gær á fundi samtaka sem standa að alheimsátaki gegn mislingum, þ.e. bandaríski Rauði krossinn, Stofnun Bandaríkjanna um heftingu smitsjúkdóma (CDC), Sjóður Sameinuðu þjóðanna, UNICEF og Alþjóðaheilbrigðisstofnunin.
Bólusetningar tvisvar á lífsleiðinni
„Rekja má þennan árangur til mikillar vinnu og skuldbindinga landa í Miðausturlöndum í baráttunni við mislinga,“ sagði Dr. Margaret Chan, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. „Við höfum aðeins tvö ár til að ná þeim markmiðum sem sett voru til ársins 2010, ég hvet því öll lönd sem berjast við mislinga til að gefa í í baráttu sinni og bólusetja öll börn gegn sjúkdómnum.“
Sú mikla fækkun sem orðið hefur á dauðsföllum vegna mislinga í Miðausturlöndum er að hluta til að þakka aukningu í bólusetningum almennt og í löndum þar sem eru svæði sem eru mjög erfið yfirferðar. Árið 2007 voru tvöfalt fleiri börn bólusett á svæðinu í gegnum slík bólusetningarátök en árið 2006.
Þau markmið sem sett hafa verið fyrir árið 2010 velta á því að öll börn fái tvær bólusetningar gegn mislingum, þar af eina fyrir eins árs afmæli sitt. Styrkja verður eftirlit með sjúkdómnum og veita meðferð til sjúkra.