Lífsbjörg í Gíneu-Bissá
Awa Gras þekkir frá fyrstu hendi hversu banvæn malaríusmit geta verið fyrir börn sem alast upp í Gíneu-Bissá. Hún hefur alið átta börn og malarían hefur tekið líf fjögurra þeirra. Síðast féll fjögurra ára sonur hennar í valinn, en hann kom heim lasinn eftir fótboltaleik einn daginn.
,,Hann hafði háan hita og kvartaði undan eymslum í líkamanum,” minntist Awa Gras. ,,Eins og systkini hans sem hafa dáið úr malaríu var hann ekki einu sinni orðinn fimm ára gamall. Þegar við náðum loksins á sjúkrahúsið og læknarnir staðfestu að hann var smitaður af malaríu var það orðið of seint. Tveimur dögum síðar var hann dáinn.”
Lífsbjörg
Á 30 sekúndna fresti deyr barn af völdum malaríu, einhversstaðar í heiminum. Ef fullorðnir eru meðtaldir, deyr 1 milljón manna af völdum malaríu í heiminum á ári hverju, flestir þeirra í Afríku. Árið 2006 útvegaði UNICEF meira en 24 milljón moskító-flugnanet sem úðuð höfðu verið með skordýraeitri til þess að koma í veg fyrir malaríusmit. Þetta átak var hluti af stærra verkefni UNICEF við að minnka barnadauða út um allan heim. Íslenskir aðilar studdu dyggilega við dreifingu moskítóflugnaneta í Gíneu-Bissá fyrir fjármagn sem safnaðist á fullveldishátíð UNICEF Ísland í desember árið 2005.
Til þess að koma í veg fyrir dauða fleiri barna sinna fór Awa Gras með tveggja ára gamalli dóttur sinni, Mariama, til miðstöðvar þar sem UNICEF dreifði malaríunetum sem hluta af þjóðarátaki gegn malaríu í Gíneu-Bissá. Börn undir fimm ára aldri fengu flugnanetin langvinnu ókeypis.
Moskítónetum var einnig dreift til barnshafandi kvenna við mæðraskoðun til þess að vernda þau gegn malaríusmitum og veita nýfæddum börnum þeirra betri lífslíkur.
Sjúkdómur sprottin af fátækt
Awa Gras og börnin hennar búa á fjölmennu heimili með engu rafmagni og engu rennandi vatni. Stór partur af degi fjölskyldunnar fer í það að sækja vatn í þorpsbrunninn. Öll börnin hennar eru smituð af malaríu.
,,Í þessu landi er allt fullt af moskítóflugum og öðrum skordýrum,” sagði Awa Gras. ,,Ástandið er svo slæmt einmitt núna að ógjörningur er að sofa án moskítóflugnanetanna. Netin munu einnig hjálpa til við það að koma í veg fyrir malaríusmit.”
Oft er litið á malaríu sem sjúkdóm hinna fátæku, þar sem það eru fátækar fjölskyldur sem verða verst út úr smitunum. Næstum hvern einasta dag missir einhver í nágrenni við Öwu Gras fjölskyldumeðlim af völdum malaríu, eða þekkir einhvern sem fellur í valinn af völdum sjúkdómsins.
Áríðandi beiðni um stuðning
Aðstoðaryfirmaður UNICEF í Gíneu-Bissá, Sylvana Nzirorera, lagði fram áríðandi beiðni varðandi örlög barna í landinu.
,,Við verðum að halda lífi í börnum í Gíneu Bissá,” staðhæfði hún. ,,Við stöndum nú frammi fyrir því að 30 börn deyja á hverjum einasta degi. Þetta er gjörsamlega óhæft. Þau deyja úr niðurgangi, vannæringu, öndunarfærasýkingum og malaríu. Við getum ekki sætt okkur við þetta. Við þurfum fjármagn, við þurfum skuldbindingu frá stjórnvöldum. En ég verð þó að segja að ekki er til fjármagn hjá stjórnvöldum til nauðsynlegra aðgerða.”
Annar starfsmaður UNICEF í Gíneu-Bissá, Dr. Mehoundo Faton, tók í sama streng.
,,Malaría er aðaldánarvaldur barna undir fimm ára aldri,” sagði Dr. Mehoundo. ,,Notkun moskítóflugnaneta er skilvirkasta aðgerðin til þess að koma í veg fyrir malaríusmit og draga þannig úr barnadauða.”
Fyrir Öwu Gras skipta úrræði sem þessi höfuðmáli fyrir fjölskyldu hennar. Hún mun sofa aðeins betur, vitandi það að litla dóttir hennar sefur varin gegn einum aðaldánarvöldum barna í Afríku.