árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.
Þú ert hér:
Landsnefnd UNICEF á Íslandi hefur hafið söfnun vegna hjálparstarfs UNICEF í Mjanmar. Fólk getur lagt söfnuninni lið í gegnum heimasíðu okkar á www.unicef.is/mjanmar
Auk þess er hægt að hringja í söfnunarnúmer. Hægt er að velja um að láta gjaldfæra þrjár upphæðir á símreikninginn sinn; 1000 krónur, með því að hringja í síma 904-1000; 3.000 krónur, með því að hringja í 904-3000; og 5.000 krónur, með því að hringja í 904-5000.
Börn eru afar berskjölduð fyrir öllum þeim hættum sem fylgja í kjölfar náttúruhamfara. Það er UNICEF því mikið metnaðarmál að bregðast hratt og örugglega við neyðinni sem nú ríkir í Mjanmar.
Lesið nánar um ástandið í Mjanmar