Vissir þú að...

árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.

Þú ert hér:  

Neyðaraðgerðir í Rúanda

©UNICEF/HQ99-0457/Giacomo PirozziSunnudaginn 3. febrúar 2008, gekk röð jarðskjálfta yfir Rúanda og Lýðveldið Kongó. Jarðskjálftarnir höfðu aðallega áhrif á tvö héruð, Nyamasheke og Rusizi sem eru á landamærum Lýðveldisins Kongó og Rúanda.

Kirkjur, heimili og opinberar byggingar (þar á meðal eitt sjúkrahús) gjöreyðilögðust í jarðskjálftunum og heilbrigðisstarfsfólk á í erfiðleikum með að annast þær hundruðir særðra sem þarfnast hjálpar. Tölur frá neyðarviðbragðsteymi ríkisstjórnar Rúanda sýna að 37 manns hafa dáið og 643 hafa særst, þar á meðal eru 367 sem þarfnast áfallahjálpar.

Mörg heimili hafa verið lögð í rúst á svæðinu og 1.201 fjölskylda er nú heimilislaus. Tuttugu grunnskólar urðu illa úti í jarðskjálftunum, einn gjöreyðilagðist og nítján urðu ónothæfir. Fjórir framhaldsskólar hafa einnig orðið fyrir skemmdum. Stjórnvöld upplýstu að þörf er á að endurbyggja 212 skólastofur og lagfæra 113 skólastofur. Búið er að loka öllum grunn- og framhaldsskólum sem urðu fyrir skemmdum í jarðskjálftunum.

UNICEF og samstarfsaðilar vinna nú hörðum höndum að því að bæta aðgengi að heilsugæslu, menntun, skjóli, næringu og hreinu vatni auk þess að tryggja verndun barna og samræma neyðaraðgerðir.

  Til þess að mæta þörfum barna og kvenna á jarðskjálftasvæðunum, bæði til skemmri og lengri tíma, þarfnast UNICEF að minnsta kosti 2.245.284 bandaríkjadala eða 145.943.460 íslenskra króna.

  Þrátt fyrir gríðarlegan afturbata samfélagsins í Rúanda eftir þjóðarmorðið árið 1994 er Rúanda enn í 161. sæti á lífsgæðalista Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna. Talið er að 57% íbúa Rúanda lifi undir fátæktarmörkum.