Vissir þú að...

UNICEF veitir börnum í yfir 90 löndum hreint vatn og bætir hreinlætisaðstöðu í skólum og samfélögum.

Þú ert hér:  

Samráðsfundur um starf ungmennaráða

Miðvikudaginn 26. nóvember var haldinn í fyrsta skipti á landsvísu samráðsfundur um stofnun og starf ungmennaráða. UNICEF á Íslandi, Akureyrarbær og Íþrótta og tómstundaráð Reykjavíkur  stóðu fyrir fundinum sem haldinn var á Akureyri.

Markmiðið með fundinum var að ræða helstu hagnýtu atriði sem varða ungmennaráð m.a. stofnun þeirra, áhrif, vinnulag og stjórnsýslulega stöðu innan sveitastjórna.

Árið 2007 tóku í gildi ný Æskulýðslög á Íslandi og í 11. grein þeirra kveður á um að Sveitarstjórnir hlutist til um að stofnuð séu ungmennaráð. Hlutverk ungmennaráða , samkvæmt lögunum, er m.a. að vera sveitarstjórnum til ráðgjafar um málefni ungs fólks í viðkomandi sveitarfélagi. Þessi grein æskulýðslaganna endurspeglar 12. Grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem kveður á um rétt barna til að láta skoðanir sínar í ljós og til að hafa áhrif.

Fundurinn var vel sóttur og komu þátttakendur víðsvegar að af landinu. Ágúst Þór Árnason aðjúnkt við Félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á  Akureyri ræddi um bakgrunn og hugmyndafræði unglingalýðræðis, en auk hans deildu þau Heiðrún Janusardóttir frá ungmennaráði Akraness, Óðinn Gunnar Óðinnson frá ungmennaráði Fljótsdalshéraðs og Andri Ómarsson frá ungmennaráði ÍTR þekkingu sinni og reynslu með þátttakendum.

Nú þegar starfa mörg ungmennaráð á Íslandi og á næstu mánuðum munu fleiri líta dagsins ljós. Markmið með starfsemi ungmennaráða er að skapa vettvang og leiðir til þess að gera þeim sem eru yngri en 18 ára  kleift að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri við viðeigandi aðila og taka þannig þátt í samfélaginu.

Með slíku lýðræðislegu uppeldi er lögð áhersla á virkni einstaklinga,þátttöku og ábyrgð. Unglingarnir eru þjálfaðir í að taka sjálfsstæðar ákvarðanir og taka afleiðingum þeirra sem og temja sér víðsýni og gagnrýna hugsun. Auk þess er Sjálfsmynd unglinga styrkt og unglingurinn undirbúinn  fyrir virka þátttöku í lýðræðislegu samfélagi.

Skilningur á lýðræði og færni til að taka þátt í lýðræðislegum ferlum og starfi eru hornsteinar þess að skapa sterka borgaravitund hjá ungu fólki og eru ungmennaráð mikilvægur vettvangur til þess.