Vissir þú að...

þegar neyð skellur á leiðir UNICEF oftast alþjóðlegt hjálparstarf í vatns- og hreinlætisverkefnum, en með því að tryggja hreinlæti og aðgang að heilnæmu vatni má koma í veg fyrir sjúkdómsfaraldra.

Þú ert hér:  

UNICEF flytur neyðargögn til Simbabve

Flugvél með neyðargögnum frá UNICEF er lent í Harare, Simbabve, og er þeim ætlað að hjálpa íbúum landsins að stemma stigu við kólerufaraldurinn og hnignandi heilsugæslu í landinu.

Neyðargögnin innihalda m.a. allan útbúnað til að gefa næringu í æð, lífsnauðsynleg lyf og sjúkragögn til að hjálpa til við fæðingar. Koma neyðargagnanna mun enn frekar auka viðbrögð UNICEF við kólerufaraldrinum og gera samtökunum kleift að veita barnshafandi konum aðhlynningu. Auk þess má finna þar lyf sem stemma stigu við ofþornun líkamans og eru þau lífsnauðsynleg kólerusjúklingum.

,,Þetta er vel úthugsuð aðferð til að bregðast við mjög alvarlegu ástandi," sagði yfirmaður UNICEF í Simbabve, Roeland Monasch. ,,Við erum þegar að útvega 70% allra lyfja í landinu og þessi hjálpargögn munu auka enn frekar aðstoð samtakanna í landinu."

140 tonn af hjálpargögnum

Sendingin, sem styrkt er af Þróunarsamvinnustofnun Bretlands og ríkisstjórn Hollands, er 140 tonn. ,,Við erum stolt af því að geta hjálpað til og er þetta hluti af 15 milljón dollara styrk sem við erum að veita til þess að koma í veg fyrir kólerufaraldurinn og styrkja stoðir heilsugæslu í Simbabve," sagði yfirmaður Þróunarsamvinnustofnunar Bretlands í Simbabve. ,,Það er forgangsatriði á þessum tímapunkti að bjarga mannslífum, en finna verður lausn á djúpstæðari vandamálum þessa lands eins fljótt og kostur er."

Yfir 1100 manns hafa látist af völdum kólerunnar í Simbabve og nærri 24 þúsund tilfelli hafa komið upp. Staðan hefur versnað með lokun stórra sjúkrahúsa, skorti á lyfjum og tækjum, og vegna þess að heilsugæslustarfsfólk kemst ekki til vinnu. Samanlagt gera þessir þættir það að verkum að illa hefur tekist til við að halda kólerufaraldrinum í skefjum og hætta hefur skapast fyrir konur og ungabörn við fæðingar.

UNICEF dreifir þúsundum tonna af hjálpargögnum á hverjum degi

Ein flugvél til viðbótar mun lenda með hjálpargögn um miðnætti, aðfaranótt Þorláksmessu. Hjálpargögnunum verður dreift til 40 heilsugæslustöðva um land allt, sem taka á móti kólerusjúklingum, auk annarra heilsugæslustöðva.

UNICEF heldur áfram að veita neyðaraðstoð við kólerufaraldrinum með því að dreifa yfir 500 þúsund lítrum af vatni á hverjum degi, 3.800 tonnum af vatnshreinsiefnum til þéttbýliskjarnanna og veita nauðstöddum önnur lífsnauðsynleg hjálpargögn á meðan á neyðarástandinu stendur.