English version

Tíðni barnadauða aldrei verið lægri – hægt að ná meiri árangri að mati UNICEF

© UNICEF/JeanÍ nýrri skýrslu UNICEF um stöðu barna í heiminum, The State of the World’s Children 2008, er lögð áhersla á leiðir til að draga úr þeim fjölda barna sem deyr fyrir fimm ára aldur. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem haldinn var í Genf í dag, 22. janúar. (http://www.unicef.org/sowc08).  

Skýrslan beinir sjónum að Þúsaldarmarkmiði Sameinuðu þjóðanna númer 4, sem er að lækka tíðni barnadauða (undir 5 ára) um tvo þriðju frá 1990 til 2015. Nýlegar tölur sýna að dregið hefur úr barnadauða um helming síðan árið 1960 og er nú í fyrsta skipti undir 10 milljónum á ári. Þetta er mikill árangur, en samt óásættanlegt að mati UNICEF. Skýrslan bendir á leiðir og aðgerðir sem gætu leitt til enn meiri árangurs á þessu sviði. Enn fremur greinir skýrslan hvaða lönd og svæði eru á réttri braut og hvaða svæði þurfi mikla hjálp til að koma í veg fyrir barnadauða.

UNICEF bendir einnig á að fjórða Þúsaldarmarkmiðið er háð öðrum markmiðum, s.s. að eyða fátækt og hungri (nr.1), bæta mæðravernd (nr. 5), berjast gegn HIV/alnæmi og öðrum sjúkdómum (nr. 6) og auka aðgang að vatni og bæta hreinlæti (nr. 7). UNICEF telur að það sé ekki ómögulegt að draga úr barnadauða en það þýði næstum helmingslækkun á heimsvísu frá 2006 (9,7 milljónir) til ársins 2015 (5 milljónir). Ljóst er að þessu marki verður ekki náð nema með sterkum pólitískum vilja, auknu fjármagni og öruggum úrræðum.

Lífsafkoma barna á Íslandi 
Í skýrslunni kemur fram að Ísland er enn með lægstu tíðni barnadauða (undir 5 ára aldri) í heimi, ásamt Andorra, Liechtenstein, San Marínó, Singapúr og Svíþjóð. Dregið hefur úr barnadauða á Íslandi um 57% síðan árið 1990. UNICEF telur tíðni barnadauða gefa góða mynd um aðstæður barna í hverju landi fyrir sig, en einnig má sjá lista yfir fjölda atriða sem varða velferð barna í heiminum, s.s. menntun, bólusetningu, heilsugæslu, aðhlynningu þungaðra kvenna, næringargjöf, þjóðartekjur, barnaþrælkun, giftingar barna, útbreiðslu HIV/alnæmis og aðgang að hreinu vatni. Þar sem upplýsingar um Ísland liggja fyrir má sjá að börn á Íslandi búa við mjög góðar aðstæður.

Samþætt heilsugæsluverkefni geta bjargað lífum barna 
„Samþættar aðgerðir í samfélögunum sjálfum í formi þjónustu til mæðra, hvítvoðunga og ungra barna, ásamt betri innviðum heilsugæslu í hverju landi gætu bjargað lífi margra af þeim 26 þúsundum barna undir 5 ára aldri sem deyja á hverjum degi,“ sagði Ann M. Veneman, framkvæmdastjóri UNICEF. „Skýrslan lýsir áhrifum einfaldra og ódýrra aðgerða sem geta bjargað lífum, s.s. brjóstagjöf, bólusetning, dreifing malaríu-flugnaneta og A-vítamíns. En allar þessar aðgerðir hafa leitt til þess að verulega hefur dregið úr barnadauða á síðustu árum.“

Skýrslan greinir frá því að auka þurfi aðgang fólks að heilsugæslu og forvörnum svo að hægt sé að takast á við afleiðingar af lungnabólgu, niðurgangi, malaríu, vannæringu og HIV/alnæmi.

Skýrslan segir frá verkefnum sem hafa reynst vel, eins og t.d. átakið um lífsafkomu og þroska barna (Accelerated Child Survival and Development Initiative), sem er leið UNICEF til að veita grunnheilsugæslu til fátækra heimila í sunnanverðri Afríku. Einnig má nefna viðamikið alþjóðlegt bólusetningarátak gegn mislingum, en það hefur leitt til þess að dauðsföllum vegna sjúkdómsins hefur fækkað um 68% á heimsvísu og um 90% í Afríku síðan árið 2000.

Þörfin fyrir aðgerðir til að bjarga lífi barna er hvergi meiri en í sunnanverðri Afríku þar sem að meðaltali eitt af hverjum sex börnum lætur lífið fyrir fimm ára aldur. Árið 2006 mátti rekja helming allra dauðsfalla undir fimm ára til sunnanverðrar Afríku, þrátt fyrir þá staðreynd að tæplega fjórðungur barna heims búi þar.

Leiðir til úrbóta 
Í skýrslunni má finna aðgerðaráætlun sem UNICEF og samstarfsaðilar hafa þróað til að hjálpa löndum við að draga úr mæðra- og barnadauða og geigvænlegum afleiðingum þess á samfélögin. Í skýrslunni kallar UNICEF eftir:

  • að fella mæðravernd og heilsuvernd barna inn í stefnumótun ríkisstjórna til að innviðir heilsugæslu styðji sérstaklega við lífsafkomu barna og mæðra,
  • þróa og styrkja heilsuvernd þannig að hver og einn fái bólusetningar og aðra heilsuverndandi meðferð á ákveðnum tímapunktum á ævi sinni,
  • þátttöku samfélaga í uppbyggingu heilsugæslu, t.d. með fræðslu, að starfsfólk sé sótt þaðan og að leitað sé samstarfs þeirra í uppbyggingu og stefnumótun, 
  • góðum upplýsingum og tölum til grundvallar fyrir stefnumörkun og skipulagningu þróunarverkefna, 
  • skuldbindingu ríkisstjórna og leiðtoga við uppbyggingu og fjármögnun heilsugæslu og heilsuverndandi aðgerða; og 
  • auknu alþjóðlegu samstarfi og að heilsuvernd barna verði alþjóðlegt forgangsverkefni.

Skýrslan leggur sértaka áherslu á þátttöku samfélaga í heilsugæsluverkefnum og tekur saman dæmi víða um heim þar sem slík samfélagsverkefni hafa leitt til árangurs fyrir börn á afskekktum svæðum.

,,Velferð barna er ekki bara spurning um mannréttindi, þetta er spurning um brýna þróun,“ sagði Joy Phumaphi, aðstoðarforseti þróunarnets Alþjóðabankans (Human Development Network at the World Bank). „Að fjárfesta í heilsu barna og mæðra er efnahagsleg ákvörðun og ein af þeim betri sem ríki getur tekið til að tryggja sér betri framtíð.“

Um The State of the World’s Children 
Skýrslan The State of the World’s Children er flaggskip UNICEF og kemur út árlega á vegum samtakanna. Þar er að finna upplýsingar um aðstæður barna um allan heim. Þema skýrslunnar í ár er lífsafkoma barna (Child Survival).

Upplýsingarnar í skýrslunni eru annars vegar unnar úr könnunum á heimilum og hins vegar út frá tölulegum upplýsingum frá samstarfsaðilum UNICEF, s.s. Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni og Alþjóðabankanum. Upplýsingar um barnadauða eru teknar frá nýjustu Multiple Indicator Cluster-rannsóknunum (MICS) og Demographic and Health-rannsóknum (DHS), sem USAID styður.

Um UNICEF 
Í 60 ár hefur UNICEF verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn. UNICEF starfar á vettvangi í yfir 150 löndum og svæðum og stendur vörð um líf barna frá fæðingu til fullorðinsára. UNICEF útvegar flestar bólusetningar til barna í þróunarlöndunum, styður heilsugæslu- og næringarverkefni fyrir börn, veitir börnum menntun og vernd gegn ofbeldi, misnotkun og HIV/alnæmi. UNICEF treystir eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja og ríkisstjórna. 

Kynning á skýrslunni The State of the World’s Children 2008 
Skýrslan verður kynnt alþjóðlega kl. 12:30 GMT þriðjudaginn 22. janúar í Salle de Press III í húsi Sameinuðu þjóðanna í Genf.

Talsmenn verða Ann M. Veneman, framkvæmdastjóri UNICEF, Dr. Margaret Chan, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, og Bience P. Gawanas, fulltrúi í félagsmálanefnd Afríkusambandsins.