á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.
Þú ert hér:
Því fyrr sem nýfædd börn greinast og fá meðferð við HIV/alnæmi því meiri lífslíkur eiga þau, samkvæmt nýrri skýrslu fjögurra hjálparstofnana Sameinuðu þjóðanna sem kynnt var í dag.
Skýrslan, sem ber heitið Children and AIDS: Third stocktaking report, er sameiginlegt verkefni UNICEF, Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO), sameiginlegrar áætlunar S.þ. gegn alnæmi (UNAIDS) og Mannfjöldasjóðs S.þ. (UNFPA). Skýrslan var kynnt í dag, 1. desember, á alþjóðlegum degi alnæmis.
„Án viðeigandi meðferðar mun helmingur smitaðra barna deyja af völdum sjúkdóma, sem tengja má við alnæmi, fyrir tveggja ára aldur,“ sagði Ann M. Veneman, framkvæmdastjóri UNICEF. „Lífslíkur eru allt að 75% hærri hjá HIV jákvæðum nýburum sem fá greiningu og hefja meðferð á fyrstu 12 vikum lífs síns.“
Árið 2007 voru þó innan við 10% barna, sem áttu HIV-smitaðar mæður, prófuð fyrir HIV áður en þau urðu tveggja mánaða gömul. Skýrslan hvetur til aukinnar prófunar þannig að hægt yrði að hefja viðeigandi meðferð eins fljótt og kostur er.
„Ekkert barn ætti að deyja vegna alnæmis í dag,“ sagði yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, Dr. Margaret Chan. „Við vitum hvernig á að koma í veg fyrir þessi dauðsföll, en nú verðum við að einbeita okkur að því að styrkja heilsugæslukerfið til að það geti tryggt öllum mæðrum og börnum meðferð eins fljótt og unnt er.“
HIV-prófun meðal nýfæddra barna í þeim löndum sem glíma við háa tíðni alnæmis, eins og Kenía, Malaví, Mósambík, Rúanda, S-Afríka, Svasíland og Sambía, hefur aukist. Árið 2007 voru 30 lág- og meðaltekjulönd sem notuðu sérstaka tegund HIV prófunar (DBS*) miðað við 17 lönd árið 2005. Í sumum löndum sunnanverðrar Afríku, þ.á.m. Botsvana og S-Afríku, eru nú allt niður í 6 vikna börn prófuð. Í framhaldinu fá mörg þeirra viðeigandi lyfjameðferð.
HIV/alnæmi meðal þungaðra kvenna
Allt of fáar þungaðar konur vita hvort þær eru með HIV eða ekki. Árið 2007 fengu aðeins 18% þungaðra kvenna í lág- og meðaltekjulöndum HIV-prófun og aðeins 12% þeirra sem greindust jákvæðar fóru í frekara mat til að greina á hvaða stigi sjúkdómurinn væri og hvernig meðferð þær þyrftu á að halda.
„Að fyrirbyggja smit frá móður til barns er ekki bara góð leið til að hefta útbreiðslu sjúkdómsins, heldur einnig sjálfsögð mannréttindi,“ sagði framkvæmdastjóri UNAIDS, Dr. Peter Piot. „Við sjáum jákvæða þróun í mörgum löndum, sér í lagi í Afríku, en við verðum að auka HIV prófun og meðferð þungaðra kvenna.“
Skýrslan mælir með auknu aðgengi að prófun sem mælir ónæmiskerfi HIV-smitaðra mæðra til að ákvarða á hvaða stigi sjúkdómurinn er svo hægt sé að veita viðeigandi meðferð. Það mun svo aftur draga verulega úr líkum á því að sjúkdómurinn berist til barna þeirra.
Flest nýsmit meðal ungmenna
Fyrirbyggjandi aðferðir eru einnig stór hluti af þeirri áætlun sem Sameinuðu þjóðirnar hafa sett fram um HIV og alnæmi. Fjöldi ungmenna heldur áfram að smitast ár frá ári – 45% allra nýsmita eiga sér stað í aldursópnum 15 til 24 ára.
Meðferð nýfæddra HIV jákvæðra barna, að koma í veg fyrir smit frá móður til barns og að fyrirbyggja smit meðal ungmenna eru þrír af meginstólpum í baráttunni gegn HIV/alnæmi. Síðari hluti skýrslunnar hvetur til aukinnar verndar og umönnunnar þeirra 15 milljóna barna sem hafa misst einn eða báða foreldra af völdum alnæmis.
Bakgrunnur átaksins Unite for Children, Unite against AIDS
Skýrslan, Children and AIDS: Third stocktaking report, er sú þriðja í röðinni sem fer yfir hvernig alnæmi snertir börn og ungmenni. Fyrsta skýslan var kynnt í október 2005 af UNICEF, UNAIDS og öðrum samstarfsaðilum sem vildu auka árangur á þessu sviði.
Unite for Children, Unite against AIDS er átak sem vekur athygli á áhrifum HIV/alnæmis á börn. Átakið einblínir á þarfir barna á fjórum megin sviðum sem þekkt eru sem hin fjögur Pé (Four Ps):
*DBS = Dry blood spot testing allows for collection of blood specimens when the cold chain is not available, and testing facilities are not available on site, as is the case in most low- and middle-income resource settings. Using DBS allows health providers to transport blood specimens collected locally in facilities where the infant receives routine health care including first year health interventions (such as immunization clinics) to laboratories with testing capacity.
Fjölmiðlar athugið! B-roll is available at www.thenewsmarket.com/unicef.