Vissir þú að...

yfir helming dauðsfalla barna má rekja til vannæringar. Fyrir 1000 krónur getur þú greitt fyrir 16 poka af næringaríkri fæðu fyrir vannærð börn.

Þú ert hér:  

Góð umönnun á fyrstu árum ævi barna skiptir sköpum

Umtalsverðar breytingar hafa orðið á umönnun ungra barna í ríkustu löndum heims, segir í nýrri skýrslu sem kynnt var af rannsóknarmiðstöð UNICEF í Flórens (UNICEF Innocenti Research Centre) í dag. Samkvæmt skýrslunni, Umbreyting í umönnun barna, ver meiri hluti barna í efnalega vel stæðum löndum barnæskunni utan heimilis. Ísland uppfyllir níu af tíu viðmiðum sem skýrslan setur fram í samanburði sínum á umönnun ungra barna.

Nærri 80% af þriggja til sex ára börnum í ríkum löndum njóta einhvers konar formlegrar menntunar og umönnunar. Þetta á við um allt að 25% barna undir þriggja ára aldri og í sumum löndum er hlutfallið fyrir þann aldur hátt í 50%. Á síðasta áratug jókst fjöldi barna undir eins árs sem naut umönnunar utan heimilis umtalsvert.

Að hluta má segja að breytingarnar endurspegli þá þróun sem orðið hefur á tækifærum kvenna á vinnumarkaði. En þessi þróun kemur einnig til af nauðsyn, þ.e.a.s. því fátækari sem fjölskyldur eru því meiri þrýstingur er á foreldra að fara aftur út á vinnumarkaðinn eins fljótt og kostur er eftir fæðingu barns.

Á sama tíma og þessar breytingar eiga sér stað um öll hin efnaðri lönd heims hefur orðið markverð þróun í skilningi okkar á heilaþroska barna. Vísindalegar rannsóknir á heilaþroska barna staðfesta að góð umönnun og samskipti á fyrstu mánuðum og árum í lífi barns skiptir sköpum fyrir framtíð þeirra.

Þróun á umönnun barna getur leitt til gagnlegra breytinga, en einnig haft hörmulegar afleðingar í för með sér. Slæm umönnun getur veikt undirstöður og umgjörð í þroska barnsins. „Góð umönnun á fyrstu árum ævinnar getur hins vegar bætt málgetu, vitsmuni og tilfinningalegan og félagslegan þroska,“ sagði Marta Santos Pais, forstjóri rannsóknarmiðstöðvar UNICEF í Flórens. „Hún getur einnig bætt lærdómshæfni, dregið úr kerfislægum mismun, verið góð fjárfesting fyrir samfélag framtíðarinnar og ýtt undir jafnrétti kynjanna.“

Sum OECD ríki fylgja skýrri stefnu í málefnum ungra barna. Í öðrum ríkjum fylgir umönnun ungra barna ekki ákveðinni stefnu og er tilviljanakennd en það tryggir þeim ekki eins góða þjónustu.

Ísland í öðru sæti
Skýrsla UNICEF setur fram tíu viðmið eða staðla þar sem farið er yfir umönnun ungra barna og hún borin saman milli OECD landanna. Skýrslan byggir þessi viðmið á sérfræðiþekkingu innan akademíunnar og hins opinbera.

„Þau viðmið sem við setjum fram eru fyrsta skrefið í átt að því að byggja upp lágmarksstaðla svo hægt sé að bæta þjónustu við yngstu börnin,“ sagði Marta Santos Pais.

Eins og staðan er í dag uppfyllir aðeins Svíþjóð öll tíu viðmiðin, en Ísland fylgir fast á eftir með níu. Eina viðmiðið sem Ísland uppfyllir ekki er hið fyrsta sem segir að fæðingarorlof skuli vera 12 mánuðir, en hér á landi er það níu. Danmörk, Finnland, Frakkland og Noregur uppfylla átta viðmið. Þetta eru þau sex lönd sem verja hvað mestu opinberu fé til þjónustu við ung börn.

Mörg önnur OECD ríki þurfa að tvöfalda fjárframlög til þjónustu við ung börn ef þau eiga að ná þeim lágmarkskröfum sem UNICEF setur fram í skýrslunni.

Um skýrsluna
Umbreyting í umönnun barna: Yfirlit og samanburður á menntun og umönnun ungra barna í efnalega vel stæðum löndum er númer átta í röð skýrslna, Report Cards, sem rannsóknarmiðstöð UNICEF í Flórens (Innocenti Research Centre) hefur gefið út. Skýrslunum er ætlað að ýta undir umræður og samanburð milli OECD ríkjanna og vekja athygli á því hvað sum lönd hafa náð langt á hinum ýmsu sviðum er varða börn, en önnur ekki. Þessi skýrsla er viðauki við skýrslur númer 6 og 7 sem voru einnig tileinkaðar börnum í efnalega vel stæðum löndum.

Skýrslan í heild (á ensku). (pdf)

Samantekt skýrslunnar á íslensku. (pdf)

Nálgast má skýrsluna á ensku og fleiri tungumálum, auk annars efnis tengt skýrslunni á http://www.unicef-irc.org/presscentre/indexNewsroom.html