á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.
Þú ert hér:
UNICEF og samstarfsaðilar dreifa hreinlætispökkum og vatnsflöskum til 3.600 kvenna og barna sem flúið hafa heimili sitt í og umhverfis Tbilisi, höfuðborgar Georgíu. Utanríkisráðuneytið sendi í gær fulltrúa á vegum friðargæslunnar til starfa hjá Barnahjálpinni.
UNICEF og aðrar alþjóðlegar hjálparstofnanir eru um þessar mundir að gera hraðmat á ástandinu (e. rapid assessment) til að hægt sé að sjá hversu stórt vandamálið er og hverjar mestu þarfirnar eru, sér í lagi hjá börnum.
Flest þeirra sem flúið hafa heimili sín í Georgíu hafa fengið skjól í 170 tímabundnum stöðum eins og leikskólum, skólum og öðrum opinberum byggingum. Á flestum þessarra staða vantar hins vegar salernisaðstöðu, drykkjarhæft vatn og rafmagn.
„Verið er að gera við flestar byggingarnar, en við höfðum í engin önnur hús að venda. Það er ekkert rafmagn hér og hvorki vott né þurrt. Við höfum heldur engin rúm til að sofa á. Við erum orðin mjög örvæntingarfull," sagði Eka Gogiashvili, 34 ára þriggja barna móðir, sem býr nú í fyrrum heilsugæslustöð í Tbilisi.
Ríkisstjórn Georgíu hóf að skrá fólk fyrir helgi. Ferlið tekur þó langan tíma sem veldur löngum biðröðum af fólki sem þarf að leita sér hjálpar.
UNICEF og samstarfsaðilar hafa sett í forgang að veita börnum mat og næringu, sem og að dreifa hreinlætisvörum, vatni og tryggja aðgang að hreinlætisaðstöðu. UNICEF hefur þegar dreift 100 tjöldum, 500 hreinlætispökkum og fjölda teppa og annarra hjálpargagna.
Auk þess eru 500 skólapakkar, 500 leikfangapakkar, 600 vatnspakkar (e. basic family water kits), 3.000 neyðarvatnspakkar, 5.000 pakkar af vatnshreinsitöflum, 30 vatnstankar (sem taka 10.000 og 1.500 lítra), 1.250 vatnsbrúsar og 18 vatnsdreifirampar (e. water distribution ramps) á leiðinni til Tbilisi frá byrgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn. Áætlað er að hjálpargögnin komi til með að mæta allra brýnustu þörfum um 6.000 fjölskyldna.
„Við verðum að koma lífum barna aftur í venjulegt horf sem fyrst, tryggja vernd þeirra og að heilsugæslustaðlar séu nógu góðir fyrir þau," sagði Benjamin Perks, varaframkvæmdastjóri UNICEF í Georgíu.
UNICEF ætlar sér einnig að skipuleggja sálræna aðstoð fyrir börn sem hafa flosnað frá heimilium sínum og tryggja að öll börn hafi aðgang að menntun þegar skólar opna aftur í september.
Áætlað er að nærri 100 þúsund manns séu á vergangi vegna átakanna á svæðinu, samkvæmt Flóttamannahjálp S.þ. Þar á meðal eru 60 þúsund börn og konur.