Vissir þú að...

þegar neyð skellur á leiðir UNICEF oftast alþjóðlegt hjálparstarf í vatns- og hreinlætisverkefnum, en með því að tryggja hreinlæti og aðgang að heilnæmu vatni má koma í veg fyrir sjúkdómsfaraldra.

Þú ert hér:  

Barnahjálpin fer austur

Um þessar mundir fer UNICEF um Austurland til að safna heimsforeldrum og kynna starfsemi Barnahjálparinnar. Farið verður um Seyðisfjörð, Reyðarfjörð, Eskifjörð og fleiri góða staði í dag og á Egilsstaði á fimmtudag og föstudag. Skemmtileg sýning verður sett upp fyrir utan Kaupfélag Héraðsbúa á Egilsstöðum.

Um er að ræða ungmenni á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna sem hafa farið um landið í sumar með sýningu, þ.e. ljósmyndasýningu, sem endurspeglar starf UNICEF, og hjálpargögn, sem UNICEF sendir á neyðarsvæði.

Hluti af sýningunni er einnig skilti þar sem fram kemur samanburður á Síerra Leóne og stöðum um allt land, þ.e. við spyrjum ,,Hvað ef Fljótsdalshérað væri í Síerra Leóne?” o.s.frv. Allt er þetta gert í þeim tilgangi að færa fólk nær þeim raunveruleika sem margir í hinum fátækari heimshlutum þurfa að búa við. Þess má geta að Síerra Leóne er í síðasta sæti á lífsgæðalista S.þ. á meðan Ísland er í fyrsta sæti.