á 45 sekúndna fresti deyr barn af völdum malaríu. Flugnanet til að koma í veg fyrir malaríu kostar aðeins 776 krónur.
Þú ert hér:
Umboðsmaður barna, Barnaheill og UNICEF á Íslandi hafa gefið út tvö veggspjöld með ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í styttri útgáfu. Veggspjöldin eru ætluð til notkunar í skólastarfi og mun Námsgagnastofnun sjá um dreifingu til grunnskólanna. Einnnig stendur til að dreifa veggspjöldunum víðar.
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins hefur verið staðfestur af flestum þjóðum heims. Ísland er skuldbundið að þjóðarétti til að virða og uppfylla ákvæði Barnasáttmálans.
Barnasáttmálinn felur í sér alþjóðlega viðurkenningu á því að börn séu hópur sem hafi sjálfstæð réttindi óháð foreldrum eða forsjáraðilum og að þau þarfnist sérstakrar verndar umfram hina fullorðnu.
Svo virðist sem börn og fullorðnir þekki lítið til Barnasáttmálans og þýðingu hans. Með útgáfu veggspjaldanna er ætlunin að bæta úr því og stuðla þannig að aukinni vitund almennings um Barnasáttmálann og þau réttindi sem hann kveður á um.
Í tilefni af Degi barnsins, sem haldinn var hátíðlegur í fyrsta sinn á Íslandi 25. maí sl., voru veggspjöldin kynnt við morgunsöng í Laugarnesskóla föstudaginn 23. maí. Félagsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, ávarpaði börnin og aðra gesti og umboðsmaður barna kynnti samstarfsverkefnið, veggspjöldin og þýðingu þeirra. Börn úr Laugarnesskóla lásu texta af veggspjaldinu sem ætlað er yngri nemendum og glöddu gesti með söng sínum.