á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.
Þú ert hér:
Í dag hefst VATNSVIKA UNICEF. Með VATNSVIKUNNI hyggst UNICEF á Íslandi vekja athygli á því útbreidda vandamáli sem takmarkaður eða enginn aðgangur að heilnæmu drykkjarvatni er. Almenningi gefst kostur á að styrkja vatnsverkefni UNICEF í þróunarlöndunum með því að leggja fram fjárframlög í gegnum heimasíðuna www.vatnsvika.is. Jafnframt stendur gestum valdra veitingastaða til boða að styðja við framtakið og greiða 250 krónur fyrir glasið af kranavatni.
Hreint drykkjarvatn er munaður sem við Íslendingar tökum flestir sem sjálfsögðum hlut. Staðreyndin er hins vegar sú að á hverjum degi neyðist yfir milljarður jarðarbúa til að svala þorsta sínum með óheilnæmu vatni. Um 6 þúsund börn deyja daglega af þessum orsökum og mun fleiri veikjast alvarlega. Skortur á aðgengi að hreinu vatni er næstalgengasta dánarorsök barna undir fimm ára aldri í heiminum.
Kynntu þér málið á www.vatnsvika.is.
VATNSVIKA UNICEF er styrkt af Orkuveitu Reykjavíkur. Þau veitingahús sem þátt taka í ár eru: Brasserie Grand, Domo, Einar Ben, Fiskmarkaðurinn,Gullfoss, Grillið, Hótel Holt, La Primavera, Ó restaurant, Perlan, Silfur, Sjávarkjallarinn, Við Tjörnina, Við fjöruborðið og VOX.