English version

Vegna fréttar Stöðvar 2 um Vatnsviku UNICEF

Vegna fréttar Stöðvar 2, um að kostnaður við Vatnsviku UNICEF, sem fram fór  4.-13. apríl sl., hafi verið meiri en ágóði söfnunarátaksins, vill UNICEF á Íslandi koma eftirfarandi á framfæri:

Allt það fé sem safnaðist í Vatnsvikunni, samtals 2,2 milljónir króna, rennur óskert til vatnsverkefna UNICEF í þróunarlöndunum. Sá kostnaður sem fór í kynningu á átakinu var allur greiddur af Orkuveitu Reykjavíkur. Orkuveitan tvöfaldaði enn fremur framlög almennings, þ.e. gaf samtals 1,1 milljón króna.

Vatnsvikan er aðeins einn liður í samstarfi okkar við Orkuveituna, sem við vitum að á eftir að skila sér á ómetanlegan hátt til þurfandi barna í heiminum. UNICEF á Íslandi og Orkuveita Reykjavíkur hafa skrifað undir þriggja ára samstarfssamning og mun Orkuveitan á næstu árum styðja vatnsverkefni UNICEF með margvíslegum hætti.

UNICEF á Íslandi er afar ánægt með samstarfið við Orkuveitu Reykjavíkur, þann áhuga sem fyrirtækið hefur sýnt starfsemi samtakanna og þann fjárstyrk sem það hefur veitt í vatnsverkefni UNICEF í þróunarlöndunum. UNICEF vill jafnframt þakka þeim veitingastöðum sem tóku þátt í Vatnsviku UNICEF 2008 og síðast en ekki síst öllum þeim fjölda fólks sem lagði átakinu lið.