Vissir þú að...

í dag eru 250.000 börn þvinguð til vopnaðra átaka. UNICEF beitir áhrifum sínum til að frelsa börn undan vopnuðum átökum og aðlaga þau samfélaginu að nýju.

Þú ert hér:  

Vináttuheimsókn til Gíneu-Bissá

©UNICEF ÍslandFyrir fjórum árum hóf UNICEF Ísland að styrkja þróunarverkefni í litla Vestur-Afríkuríkinu Gíneu-Bissá og nemur stuðningur við landið frá 2004-2009 nú 3.550.000 bandaríkjadölum. Auk þess hefur verið komið á menningartengslum við landið. Af þessum ástæðum stendur nú yfir opinber vináttuheimsókn til Gíneu-Bissá (3. – 9. mars) í þeim tilgangi að efla enn frekar tengslin milli landanna tveggja.

Í íslensku sendinefndinni eru Jóhannes Jónsson og Hreinn Loftsson úr stjórn Baugs Group, Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra, Katrín Júlíusdóttir alþingiskona, Helgi Ágústsson sendiherra og Egill Ólafsson tónlistamaður, ásamt þeim Margréti Jónsdóttur, Geir Gunnlaugssyni og Þorláki Karlssyni frá Háskólanum í Reykjavík. Áætlað er að skoða verkefni UNICEF á sviði menntunar og heilsugæslu. Hópurinn mun eiga fundi með helstu ráðherrum landsins, meðal annars forsætisráðherra, föstudaginn 6. mars og í framhaldinu verður haldinn blaðamannafundur í Bissá, höfuðborg Gíneu-Bissá, vegna komu Íslendinganna.

©UNICEF/Donata Lodi Ísland hefur myndað sérstaka vináttu með þessu vestur-afríska ríki þar sem UNICEF Ísland hefur undanfarin fjögur ár stutt verkefni fyrir börn. Með stuðningi einkaaðila á Íslandi, svo sem Baugs Group, FL Group, Fons, og annarra aðila líkt og kvenfélaga um allt land, hefur UNICEF getað byggt skóla og leikskóla, eflt heilsugæslu og bætt aðgengi að hreinu vatni, joðbætt salt og dreift malaríunetum. Mörg þúsund börn hafa notið góðs af þessum aðgerðum.

  Tengsl Gíneu-Bissá og Íslands efldust enn frekar þegar hin sögufræga bissáska hljómsveit Super Mama Djombo tók upp nýja hljómplötu í hljóðveri Sigur Rósar í nóvember síðastliðnum. Egill Ólafsson ljáir rödd sína í einu laganna, Festa. Útgáfutónleikar hljómsveitarinnar verða 7. mars í Bissá, en þess er beðið með eftirvæntingu í landinu þar sem hljómsveitin hefur ekki komið saman síðan á níunda áratugnum.

Um Gíneu-Bissá
Gínea-Bissá er stundum kallað „landið sem gleymdist” vegna þess hve afskipt það hefur verið í alþjóðlegri þróunarsamvinnu. Gínea-Bissá er meðal tíu fátækustu ríkja heims. Samkvæmt skýrslu Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna um lífsgæði frá 2007 er Gínea-Bissá í 175. sæti af þeim 177 löndum sem skýrslan nær til. Til samanburðar er Ísland í 1. sæti. Þessi veruleiki endurspeglast meðal annars í skelfilega hárri dánartíðni bissáskra barna en því sem næst fjórða hvert barn nær ekki fimm ára aldri í landinu. Aðeins 28% barna á grunnskólaaldri, 7-12 ára, er skráð í skóla. Meirihlutinn eru stúlkur enda er aðeins um fjórðungur kvenna í Gíneu-Bissá læs.