Vissir þú að...

yfir 22.000 börn deyja á dag af orsökum sem einfalt og ódýrt er að koma í veg fyrir. Við trúum því að þessi tala geti verið núll. En þú?

Þú ert hér:  

Yfirlýsing frá UNICEF vegna átakanna í Georgíu og Ossetíu

©UNICEF/PirozziUNICEF hefur miklar áhyggjur af stigvaxandi ofbeldi í Suður-Ossetíu þar sem fréttir herma að fjöldi óbreyttra borgara liggi í valnum. Konur og börn eru stór hluti þeirra sem lenda í átökum og þurfa að leita skjóls.

UNICEF stendur með alþjóðasamfélaginu í að binda enda á það ofbeldi sem er á svæðinu og kallar á alla aðila að tryggja öryggi og aðgang að mannúðaraðstoð óbreyttra borgara, sérstaklega kvenna og barna.

UNICEF vinnur náið með öðrum stofnunum Sameinuðu þjóðanna á svæðinu og er að meta aðstæður og helstu þarfir. Eins og staðan er nú er aðgangur að átakasvæðunum afar erfiður. Hjálparstofnanir S.þ. hafa boðið fram aðstoð sína til yfirvalda í Georgíu og Rússlandi.

Skrifstofur UNICEF í Tbilsi, Gergíu og Moskvu og Vladikavkaz (Norður-Ossetíu) í Rússlandi vinna með ríkisstjórnum og samstarfsaðilum sínum að þróunarverkefnum landanna. Þær fylgjast náið með stöðunni og eru í reglulegu sambandi við viðeigandi yfirvöld á hverjum stað.