UNICEF er á svæðinu fyrir, á meðan og eftir að neyð skellur á. Sem heimsforeldri ert þú með okkur allan tímann.
Þú ert hér:
Áætlað er að í lok ársins 2008 hafi um 4 milljónir manna í fátækari ríkjum heims fengið lyfjameðferð við HIV samanborið við 3 milljónir árið 2007 og 400.000 árið 2003. Þetta kemur fram í bráðabirgðagögnum frá WHO, UNAIDS og UNICEF.
Um 285.000 börn nutu góðs af verkefnum á þessu sviði árið 2008, sem er 45% fjölgun frá árinu áður, og í Afríku sunnan Sahara-eyðumerkurinnar fengu um 3 milljónir meðferð, sem er 38% fjölgun.
Þessar tölur – sem voru kynntar á alþjóðlegri ráðstefnu um HIV sem fram fór í Höfðaborg í síðustu viku – byggja á gögnum frá um 127 fátækum ríkjum. WHO, UNAIDS og UNICEF, ásamt þeim löndum sem í hlut eiga, vinna nú að því að ljúka við samantektina og verða lokaniðurstöður birtar í september nk., í skýrslu sem ber heitið „Towards Universal Access“.