á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.
Þú ert hér:
Þann 3. maí 2008 gekk hvirfilbylurinn Nargis yfir Mjanmar með skelfilegum afleiðingum. 140.000 manns létu lífið, 2,4 milljónir slösuðust og 800.000 misstu heimili sín. Yfir helmingur allra skóla og nærri 75% heilsugæslustöðva á hamfarasvæðinu eyðilögðust eða urðu fyrir miklum skemmdum.
Eyðilegging heimila, skóglendis, samgöngumannvirkja og eigna var gríðarleg auk þess sem fjölmargir misstu lífsviðurværi sitt. Í júlí 2008 var áætlað að alls næmi fjárhagslegt tjón vegna Nargis nærri 2 milljörðum bandaríkjadala.
Undanfarið ár hefur UNICEF unnið ötulega að því að aðstoða börn í landinu. Á sviði menntunar hefur UNICEF útvegað námsgögn og þjálfað kennara, gert við og endurbyggt skóla svo að börn eigi afturkvæmt í skólastofurnar eins fljótt og mögulegt er.
Samtökin hafa einnig unnið náið með samstarfsaðilum sínum að aðkallandi verkefnum á sviði heilsu næringu, vatns of hreinlætis, til að koma í veg fyrir útbreiðslu farsótta og vannæringu. Þá hafa hundruðir barna sem urðu viðskila við fjölskyldur sínar sameinast fjölskyldum sínum eða verið komið í varanlegt fóstur.