Vissir þú að...

í dag eru 250.000 börn þvinguð til vopnaðra átaka. UNICEF beitir áhrifum sínum til að frelsa börn undan vopnuðum átökum og aðlaga þau samfélaginu að nýju.

Þú ert hér:  

Margt á döfinni vegna 20 ára afmælis Barnasáttmálans

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna, útbreiddasti mannréttindasáttmáli heims, verður 20 ára föstudaginn 20. nóvember. Í tilefni af tímamótunum hafa ungmennaráð umboðsmanns barna, Barnaheilla og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) sameinað krafta sína og munu halda mikilvægi sáttmálans á lofti með fjölbreyttum hætti vikuna 15. til 20. nóvember.

Meðlimir ungmennaráðanna hófu afmælisvikuna í gær, sunnudaginn 15. nóvember, á því að dreifa upplýsingarbæklingum um Barnasáttmálann til gesta og gangandi í Kringlunni og ræða um sáttmálann við fróðleiksfúsa. Í Barnasáttmálanum er einmitt m.a. kveðið á um að hann skuli kynna með virkum hætti, jafnt fyrir börnum og fullorðnum.

Í morgun færðu ungmennaráðin svo alþingismönnum upplýsingabækling um Barnasáttmálann. Ungmennaráðin vildu með þessu vekja athygli þingmanna á réttindum barna og hvetja þá til að kynna sér efni Barnasáttmálans.

Margt á döfinni
Það mun svo kenna ýmissa grasa í dagskrá ungmennanna í vikunni. Ásamt því að vekja almenna athygli á Barnasáttmálanum munu meðlimir ungmennaráðanna m.a. skrifa reglulegar greinar í Fréttablaðið og birtist fyrsta greinin í dag. Einnig munu ungmennaráðin funda með þingmönnum og afhenda ráðamönnum sameiginlega ályktun sína um hagsmuni barna og ungmenna.

Stuðlað að réttindabótum fyrir íslensk börn og ungmenni
Enginn mannréttindasamningur hefur verið fullgiltur af jafn mörgum ríkjum og Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna. Öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna, fyrir utan tvö, hafa fullgilt samninginn. Hérlendis hefur Barnasáttmálinn stuðlað að ýmsum mikilvægum réttindabótum fyrir börn frá því að Ísland fullgilti hann árið 1992. Frumvarp um lögfestingu sáttmálann í heild sinni verður svo lagt fyrir Alþingi í vetur.