Vissir þú að...

UNICEF er stærsti kaupandi bóluefna í heiminum. Samtökin útvega 40% barna í þróunarlöndunum bólusetningar. Það jafngildir 2,5 milljörðum skammta af bóluefni árlega.

Þú ert hér:  

Aldrei fleiri íslenskir heimsforeldrar

Aldrei hafa fleiri Íslendingar styrkt starf Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og nú. Í ágústbyrjun voru heimsforeldrar UNICEF á Íslandi yfir 14.000 talsins en heimsforeldrar styrkja samtökin með mánaðarlegum framlögum sem renna til hjálpar- og þróunarstarfs í þágu barna í fátækustu löndum heims. Það er því ljóst að þrátt fyrir þrengingar á Íslandi ætla Íslendingar ekki að gleyma þeim börnum sem búa við sárustu neyðina.

„Heimskreppan kemur verst niður á þeim börnum sem fyrir standa höllum fæti og búa við mesta neyð,“ segir Philip O‘Brien framkvæmdastjóri UNICEF í Evrópu. „Þessi börn hafa ekki efni á kreppu. Það er lífsnauðsynlegt að þau hljóti áfram stuðning á þessum erfiðu tímum. Þess vegna er svo sannarlega gleðilegt að í löndum eins og Íslandi, þar sem fólk er sjálft að fást við alvarlegar efnahagsþrengingar, heldur almenningur áfram að styðja við verkefni í þágu bágstöddustu barnanna. Það er gríðarlega mikilvægt fordæmi.“

Hvergi hlutfallslega fleiri heimsforeldrar
Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, segir gleðilegt hve meðvitaðir Íslendingar eru um þá miklu neyð sem allt of mörg börn búa við. Hvergi í heiminum séu hlutfallslega fleiri heimsforeldrar en á Íslandi sem segi sína sögu.

„Þó við hér á Íslandi glímum óneitanlega við erfiðleika núna munum við vonandi aldrei kynnast frá fyrstu hendi þeim aðstæðum sem börn og foreldrar þeirra í fátækustu ríkjunum standa daglega frammi fyrir; þar sem hungur, þrosti og sjúkdómar sem auðveldlega er hægt að koma í veg fyrir eru hluti af lífsbaráttunni.

Heimsforeldrar hjartað í starfsemi UNICEF
Frá stofnun UNICEF á Íslandi árið 2004 hafa heimsforeldrar verið hjartað í starfseminni. Fjárstuðningur heimsforeldra hefur skipt sköpum fyrir líf mörg þúsund barna í fátækari löndum heimsins. Á síðasta ári nam samanlagður styrkur heimsforeldra um 166 milljónum króna.

Í sumar  hefur svo hópur ungs fólks gengið skipulega í hverfi á höfuðborgarsvæðinu og boðið fólki að gerast heimsforeldrar. Hópnum hefur verið vel tekið hvar sem hann hefur borið niður og þakkar UNICEF almenningi kærlega fyrir jákvætt viðmót í garð samtakanna. Það sem af er sumri hafa um sex hundruð nýir heimsforeldrar bæst í hópinn en enn er unnið að því að bjóða fólki að taka þátt.