English version

Alþjóðlegur heilsudagur

Á alþjóðlegum heilsudegi, 7. apríl 2009, er lögð áhersla á mikilvægi heilsugæslu á neyðarsvæðum. Hinn alþjóðlegi dagur er haldinn til að fagna stofnun alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar eða World Health Organization.

,,Áhrif neyðar af náttúrunnar og mannavöldum fellur þungt á herðar kvenna og barna. Þar sem aðgangur að heilsugæslu hefur verið rofin vegna hamfara eru börn í mikilli hættu á að fá sjúkdóma," sagði Ann M. Veneman, framkvæmdastjóri UNICEF, meðal annars í yfirlýsingu sinni í tilefni dagsins.

,,Þegar neyð dregst á langinn og verður flóknari breiðast sjúkdómar út og erfiðara reynist að veita börnum góða heilsugæslu. Aðal dánarvaldar barna á neyðarsvæðum eru meira og minna þeir sömu og venjulega, þ.e. mislingar, malaría, niðurgangur og öndunarfærasjúkdómar. Hins vegar er erfiðara að eiga við þessa sjúkdóma vegna næringarskorts sem er svo útbreiddur á neyðarsvæðum og vegna þess að aðgengi að heilsugæslustöðvum er minni."