Vissir þú að...

UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.

Þú ert hér:  

Ár liðið frá jarðskjálftanum í Sichuan

Ár er nú liðið frá því að jarðskjálfti af stærðargráðunni 8,0 á Richter-skala reið yfir Sichuan-umdæmi í Kína. Á undanförnum tólf mánuðum hefur UNICEF varið 20 milljónum bandaríkjadala í neyðaraðstoð vegna hamfaranna. Um helmingi þess fjár hefur verið varið í heilsugæslu og aðgerða sem miða að því að tryggja börnum aðgang að heilnæmu drykkjarvatni og frárennsli skólps. Um einn þriðji hefur farið í að gera börnum kleyft að snúa aftur í örugga, vel búna og „barnvæna“ skóla. Afganginum hefur verið varið til verkefna á sviði barnaverndar, í sálrænan og félagslegan stuðning við börn, uppsetningu skýla og önnur verkefni.

Umfang eyðileggingarinnar var gífurlegt. Um 88.000 manns dóu eða týndust og nærri 400.000 slösuðust. Yfir 12.000 skólar urðu fyrir skemmdum í Sichuan og 6.500 skólar í hinu nærliggjandi umdæmi Gansu. Gríðarlegar skemmdir urðu einnig á spítulum og vegum sem og frárennslis- og vatnsveitukerfum. Þá misstu um fimm milljónir manna heimili sín. Til samanburðar má geta þess að um 1,7 milljón manns misstu heimili sín vegna hörmunganna við við Indlandshaf í desember 2004 (Tsunami).

Áfram aðstoð út 2011
„Við munum halda áfram að styðja við viðleitni kínverskra stjórnvalda við að tryggja fjölskyldum skjól og koma börnum aftur í skóla. Það eru enn margar fjölskyldur sem þurfa nauðsynlega á aðstoð að halda,“ er haft eftir dr. Yin Yin Nwe, yfirmanni UNICEF í Kína. Gerir UNICEF ráð fyrir að mannúðaraðstoð samtakanna vegna jarðskjálftans haldi áfram út árið 2011.

„Við gátum brugðist við eins fljótt og með jafnmiklum árangri og raunin er vegna og örláts stuðings styrktaraðila okkar,” sagði Dr. Nwe. UNICEF treystir eingöngu á fjárls framlög til að standa undir hjálparstarfi samtakanna í þágu barna. Samtals hefur UNICEF fengið fjárframlög upp á 37 milljónir bandaríkjadala vegan hjálparstarfsins í Kíina. Stefnt er að því að safna 45 milljónum til að standa undir langtímamarkmiðum samtakanna á jarðskjálftasvæðinu.