Vissir þú að...

93 milljónir barna hafa ekki tækifæri til að ganga í skóla – meirihluti þeirra eru stúlkur.

Þú ert hér:  

Átak í nýskráningu heimsforeldra

Ýtt hefur verið úr vör átaki í nýskráningu heimsforeldra. Í sumar mun starfsfólk frá UNICEF ganga í hús á höfuðborgarsvæðinu í þeim tilgangi að kynna UNICEF og bjóða fólki að ganga til liðs við heimsforeldraverkefni okkar. Um er að ræða styrktarleið þar sem viðkomandi styrkir samtökin mánaðarlega um fasta upphæð og rennur styrkurinn til verkefna í þágu þeirra barna sem mesta hafa þörfina.

Undanfarin ár hefur ungt fólk á vegum UNICEF skráð heimsforeldra á götum úti. Í ár verða mögulegir styrktaraðilar hins vegar heimsóttir og þeim boðið að taka þátt. Erum við hjá UNICEF vongóð um að starfsfólki okkar verði vel tekið.

Heimsforeldrar eru mikilvægasta stuðningsnet UNICEF á Íslandi. Heimsforeldrar eru um 13.500 talsins og styrktu samtökin um hvorki meira né minna en 166 milljónir árið 2008. Í krafti slíks stuðnings getur UNICEF unnið þrekvirki í þágu bágstaddra barna.

Við hvetjum sem flesta til að ganga til liðs við heimsforeldra í sumar og taka þannig þátt í að bæta kjör barna sem eiga um sárt að binda um allan heim.

Einnig er hægt að skrá sig hér.