Vissir þú að...

UNICEF er stærsti kaupandi bóluefna í heiminum. Samtökin útvega 40% barna í þróunarlöndunum bólusetningar. Það jafngildir 2,5 milljörðum skammta af bóluefni árlega.

Þú ert hér:  

Börn á Sri Lanka í hringiðu átaka

„Talið er að um 50.000 óbreyttir borgarar séu innilokaðir á aðeins nokkurra ferkílómetra stóru svæði. Við óttumst að fleiri börn muni deyja  ef sókn stjórnarhersins linnir ekki og LTTE (skæruliðar Tamíl-tígra) heldur áfram að neita óbreyttum borgurum að yfirgefa átakasvæðið,“ segir Daniel Toole, svæðisstjóri UNICEF í Suður-Asíu, um átökin á Sri Lanka.

Þúsundir óbreyttra borgara, þar af fjöldi barna, hafa látið lífið eða meiðst alvarlega síðan átökin brutust út í upphafi ársins.

„Aðalritari Sameinuðu þjóðanna hefur sagt skýrum orðum að heimurinn fylgist náið með þróun mála á Sri Lanka. Þessi nýjasta alda átaka er hörmuleg fyrir börn og er merki um algjört skeytingaleysi í garð þessarra berskjölduðustu þegna landsins,“ sagði Toole.

UNICEF fordæmir áhrif átakanna á börn
UNICEF hefur fordæmt skelfileg áhrif átakanna á börn og jafnframt skorað á stjórnvöld á Sri Lanka að draga úr hernaðaraðgerum sínum til að tryggja öryggi óbreyttra borgara. Þá hefur verið skorað á LTTE að hleypa óbreyttum borgurum frá átakasvæðinu.

UNICEF hefur einnig lýst yfir áhyggjum af bágbornum skilyðrum á átakasvæðinu, þar sem alvarlegur skortur á lyfjum, fæðu og heilnæmu drykkjarvatni bætist við eymd þeirra sem þar eru innilokaðir.